A-Ö Efnisyfirlit

Binda mætti enda á hungur í heiminum fyrir 1% hernaðarútgjalda

Kona á flótta í austurhluta Kongó vinnur við landbúnað. Mynd: © WFP/Benjamin Anguandia
Kona á flótta í austurhluta Kongó vinnur við landbúnað. Mynd: © WFP/Benjamin Anguandia

Verja þyrfti andvirði 93 milljarða Bandaríkjadala til að binda enda á hungur í heiminum fyrir árið 2030. Þótt það sé há fjárhæð er hún aðeins innan við 1% af hernaðarútgjöldum heimsins, sem hafa verið um 22 milljón milljónir undanfarinn áratug að sögn Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP). 

Í yfirliti Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) fyrir árið 2026 er því spáð að 318 milljónir manna kunni að líða hungur á næsta ári. Þetta eru tvöfalt fleiri en árið 2019.

Á sama tíma hafa minnkandi fjárveitingar neytt WFP til að forgangsraða. Reynt verður að aðstoða þann þriðjung hungraðra í heiminum sem eru í mestri neyð. WFP stefnir að því að koma 110 milljónum til hjálpar. Til þess þarf stofnunin 13 milljarða Bandaríkjadala.

Konur á námskeiði um fæðuöryggi flokka nýtínd eggaldin í Cox’s Bazar í Bangladess. © WFP/Sayed Asif Mahmud
Konur á námskeiði um fæðuöryggi flokka nýtínd eggaldin í Cox’s Bazar í Bangladess. © WFP/Sayed Asif Mahmud

Miðað við núverandi framlög kann WFP hins vegar einungis að fá helming þeirrar fjárhæðar. „Það eru hinir fátækustu sem gjalda hæsta verðið,” sagði Amina Mohammed vara-aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna þegar yfirlitið var kynnt.

WFP er líflína

„WFP er björgunarhringur fólks í framlínu átaka og veðurfarshamafara, auk þeirra sem neyðast til að flýja heimili sín. Við erum að umbreyta starfi okkar hvað varðar fjárfestingar í langtíma lausnum til að taka á matvæla-óöryggi“, Cindy McCain forstjóri WFP.

Árið 2026 áætlar stofnunin að hjálpa 110 miljónum með neyðarmatvælaaðstoð, fæðubótaefnum, og langtíma stuðningi til að styðja innlend kerfi.

„Heimurinn þarf að glíma samtímis við hungursneyð á Gasa og í hlutum Súdans. Þetta er óásættanlegt á tuttugustu og fyrstu öldinni,“ sagði McCain.

„Hungur hefur skotið rótum víða um heim. WFP hefur ítrekað sýnt fram á að snemmbærar, skilvirkar og útsjónarsamar lausnir geta bjargað og breytt mannslífum. En við þurfum sárlega á meiri stuðning að halda til að sinna áfram þessu mikilvæga starfi.“

Amina Mohammed bætti við að fjárfestingar í loftslagsaðlögun, friðarviðleitni og stuðningi við staðbundna markaði væru á meðal forgansatriða í baráttunni við hungur í heiminum.