Bandaríkin á ný til liðs við Parísarsamninginn og WHO

0
751
Biden WHO Parísarsamningur
Biden þá varaforseti í forsæti Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Úrsagnir Bandaríkjanna úr Alþjóða heilbrigðisstofnuninni og Parísarsamningum um loftslagsbreytingar hafa verið afturkallaðar. Tilskipanir þessa efnis voru undirritaðar örfáum klukkustundum eftir að Joseph Biden sór embættiseið sem forseti Bandaríkjanna í gær.   

Aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna var formlega tilkynnt í gær um að Bandaríkin gengju á ný til liðs við Parísarsamninginn. Bandaríkin undirrituðu samninginn 2015. Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti sagði sig frá samningnum. Að sögn Stéphane Dujarric talsmanns Guterres aðalframkvæmdastjóra mun Parísarsamningurinn taka gildi í Bandaríkjunum 19.febrúar 2021.

Ákvörðun fyrrverandi Bandaríkjaforseta um að segja skilið við Alþjóða heilbrigðismálastofnunina (WHO) hafði hins vegar ekki tekið gildi. Biden lét verða eitt sitt fyrsta verk að skipa svo fyrir að æðsti maður smitsjúkdómamála í Bandaríkjunum, Dr. Anthony Fauci skyldi taka þátt í fundi framkvæmdastjórnar WHO í dag.

Lyftistöng fyrir markmið um kolefnisjafnvægi

Aðalframkvæmdastjórinn fagnaði þessum yfirlýsingum. Hann minnti á að á nýliðnum leiðtogafundi hefðu ríki sem stóðu fyrir helmingi losunar koltvísýrings í andrúmsloftið, heitið því að stefna að kolefnisjafnvægi fyrir miðja öldina.

„Yfirlýsing Bidens forseta um skuldbindingu Bandaríkjanna hækkar þetta hlutfall í tvo þriðju. En það er enn mikið verk óunnið,” sagði Guterres.

„Við hlökkum til þess að Bandaríkin taki forystu í að hraða aðgerðum ríkja heims til að ná kolefnisjafnvægi. Til þess þarf nýjar landsáætlanir í samræmi við Parísarsamninginn. Þeim ber að fela í ser metnaðarfull markmið fyrir 2030. Ekki má heldur gleyma fjármögnun loftslagsaðgerða í aðdraganda COP26 fundarins í Glasgow síðar á árinu,“ sagði í yfirlýsingu aðalframkvæmdastjórans.

Tími einingar

Jafnramt fagnaði hann ákvörðun Bidens um WHO. „Nú er tími einingar og að alþjóða samfélagið taki höndum saman til að stöðva veiruna. Takast þarf á við hrikalegar afleiðingar hennar,“ sagði Guterres.

Sérstaklega skiptir málið að Bandaríkin taki þátt í COVAX samstarfinu um að útvega bóluefni. Vonast er til að þetta verði tilraunum til að koma bóluefni gegn COVID-19 til allra landa heims, lyftistöng.