A-Ö Efnisyfirlit

Bandaríkin greiddu atkvæði gegn tillögu um að fordæma innrás Rússa í Úkraínu

Atkvæðageiðslan á Allsherjarþinginu í dag
Atkvæðagreiðslan á Allsherjarþinginu í dag

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun þar sem allsherjar innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og Rússar dregnir til ábyrgðar fyrir stríðið þremur árum eftir að það hófst.

Tvær tillögur voru lagðar fram. Upphaflega lögðu Bandaríkin fram fáorða tillögu þar sem hvatt var til friðar án þess að draga Rússland til ábyrgðar. Evrópusambandið og Úkraína sameinuðust um breytingar á tillögunni til að skýrt væri hver bæri ábyrgðina. Við svo búið sátu Bandaríkin hjá við atkvæðagreiðslu um eigin tillögu.

Tillaga ESB samþykkt

Tillaga Evrópusambandsins og Úkraínu var hins vegar samþykkt með 93 atkvæðum en 65 ríki sátu hjá.

Bandaríkin, Rússland, Hvíta Rússland, Norður-Kórea, Níger, Ísrael og Ungverjaland voru á meðal 18 ríkja sem greiddu atkvæði gegn tillögu ESB og Úkraínu.

Í febrúar 2022 greiddu hins vegar 141 ríki með tillögu um að fordæma allsherjar innrásina , 35 sátu hjá og aðeins fimm voru á móti.