Parísarsamningur. Alþjóða heilbrigðisstofnunin
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna harmaði þá ákvörðun nýkjörins Bandaríkjaforseta að segja Bandaríkin frá Parísarsamningnum um viðnám við loftslagsbreytingum.
Hann er, hins vegar, þess fullviss að bandarískar borgir, ríki og fyrirtæki „haldi áfram að veita forystu og stefni að kolefnissnauðum, þolgóðum hagvexti og sköpun gæðastarfa,” sagði talskona hans í yfirlýsingu.

WHO
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) harmaði einnig úrsögn Bandaríkjanna. Í yfirlýsingu segist WHO vonast til að Bandaríkjastjórn endurskoði ákvörðunina. „Við hlökkum til að eiga uppbyggilegar viðræður til að viðhalda tengslum Bandaríkjanna og WHO í þágu heilbrigðis og vellíðunar milljóna manna um allan heim.”
Úrsagnir Bandaríkjanna úr Parísar-samningnum og WHO taka gildi að ári.
