A-Ö Efnisyfirlit

Blái herinn tekur þátt í Alþjóða hreinsunardeginum

Tómas hreinsaði um síðustu helgi með sjálfboðaliðum frá Seeds Iceland
Tómas Knútsson við hreinsunarstarf ásamt sjálfboðaliðum frá Seeds Iceland. Mynd: Blái herinn

Alþjóða hreinsunardagurinn.

Tómas Knútsson forsprakki Bláa hersins hefur hreinsað 7 tonn af rusli af ströndum landsins það sem af er þessu ári. Hann ætlar að hreinsa ströndina við Sandgerði laugardaginn 21.september og hvetur alla „plokkara” til að leggja sér lið.. Alþjóða hreinsunardagurinn er haldinn daginn áður, 20.september, og er það í fyrsta skipti sem hann er á vegum Sameinuðu þjóðanna.

Tómas segir á brattann að sækja við hreinsunarstarfið.

Alþjóða hreinsunardags-teymið tekur við verðlaunum 23.júlí 2023. Heidi Solba önnur frá vinstri, Tómas Knútsson lengst til hægri.
Alþjóða hreinsunardags-teymið tekur við verðlaunum 23.júlí 2023. Heidi Solba önnur frá vinstri, Tómas Knútsson lengst til hægri. Mynd: ©FAO/Cristiano Minichiello.

Lítill stuðningur

„Öll umgjörð um hreinsunarstarfið okkar er orðin svo ómarkvisstvegna lítils áhuga samfélagsins á verkefninu,” segir Tómas. „Við hjá Bláa hernum hreinsum bara þegar við eigum einhvern pening, þetta er orðið svo dýrt að farga ruslinu og engin hjálp fæst.”

Blái herinn hefur brugðið á það ráð að selja fjörugóssið fyrir viðurkenningu sem gefin er út í staðinn. Þannig kostar 100 þúsund að „kaupa” hver 100 kíló sem hreinsuð eru.

Plastmengun
Hrafn Jökulsson var ötull við hreinsun á Ströndum. Hér virðir hann fyrir sér furðuverk.

Hreinsað við Sandgerði

Á laugardaginn heldur Tómas upp á Alþjóða hreinsunardaginn við Sandgerði. „Það er svæði sem er rétt við túnfótinn norðan megin, þar verðum við eftir hádegið á laugardaginn.”

Tómas hefur um árabil hreinsað strendur undir merkjum Bláa hersins. Hann er fremstur meðal jafningja í þessu starfi en svokallað plokk hefur notið vaxandi vinsælda. Ástæða er til að minnast hreinsunarstarfs Hrafns heitins Jökulssonar á Ströndum.

Tómas hefur í áratug starfað í tengslum við Let´s do it world. Þetta eru samtökin, sem hafa skipulagt Alþjóða hreinsunardaginn frá 2018. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú tekið Alþjóðlega hreinsunardaginn upp á sína arma eftir samykkt Allsherjarþingsins seint á síðasta ári.

Síðastliðið ár fékk hreinsunardagurinn Sjálfbærniverðlaun Sameinuðu þjóðanna (SDG Action Award) við hátíðlega athöfn í Rómarborg