Blý í bensíni heyrir sögunni til

0
805
Blý í bensíni
Mynd: Unsplash/Sippakorn Yamkasikorn

Tuttugu ára herferð til að útrýma notkun blýs í bensíni er lokið með frábærum árangri. „Sögu blýs í bensíni er lokið. Þökk sé samvinnu ríkisstjórna í þróunarríkjum, þúsunda fyrirtækja og milljóna óbreyttra borgara,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna.

Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) hefur verið í forystu í baráttunni fyrir blýlausu bensíni. Talið er að 2.45 trilljónir Bandaríkjadala hafi sparast við að losna við blýið úr bensíninu.  

En það er áhrifin á heilsu fólks sem mestu máli skipta.

„Að binda binda enda á blýnotkun í bensíni mun koma í veg fyrir eina milljón snemmbærra dauðsfalla á ári vegna hjartasjúkdóma, heilablóðfalla og krabbameins,“ sagði Guterres.

Inger Andersen forstjóri UNEP tók í sama streng.

„Í heila öld átti blýið sök á dauðsföllum og veikindum. Þetta hefur haft áhrif á hundruð miilljóna manna og skaðað umhverfið um heim allan.“

Sögu blýsins lauk í Alsír

Blýluast bensín
Löngu eftir að blýlaust bensín ruddi sér til rúms í auðugum ríkjum var blýríkt bensín í notkun í þróunarríkjum td. í Tsjad.UN News/Daniel Dickinson

Síðasta bensínstöð sem bauð upp á blýauðgað bensín var í Alsír og hún hætti sölu þess í júlí. Bifreiðar höfðu verið knúðar með blýríku bensíni frá því 1922. Þá var farið að blanda tetraetýlblýi í bensín til að auka vélarafl.Þegar leið fram á áttunda áratug síðustu aldar innihélt næstum allt bensín í heiminum blý. Flest auðug ríki höfðu bannað blý-bensín þegar leið á níunda áratuginn. Langflest meðal- eða lágutekjuríki notuðu það hins vergar enn árið 2002. Það ár hóf UNEP ásamt samstarfsaðilum sínum í opinbera- og einkageiranum herferð til að binda enda á blýnotkun.

„Það er stórkostleg staðreynd að bandalagi ríkisstjórna, fyrirtækja og borgaralegs samfélags með Sameinuðu þjóðirnar að bakhjarli hafi tekist að losa heiminn við eitrað eldsneyti. Þetta er til marks um að hægt er að lyfta grettistaki með fjölþjóða samstarfi í þágu hreinni og grænni framtíðar,“ sagði Inger Andersen.

 

Sjá nánar hér.