A-Ö Efnisyfirlit

COP17, COP31: hvers vegna tvær COP-ráðstefnur?

COP er ensk skammstöfun fyrir ‘Conference of the Parties‘
COP er ensk skammstöfun fyrir ‘Conference of the Parties‘ Mynd: © tedw/Pixabay

Loftslagsbreytingar. Líffræðileg fjölbreytni. Í haust standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir tveimur viðburðum sem kallast „COP“; COP17 í Jerevan í Armeníu og COP31 í Antalya í Tyrklandi.

Hvað þýðir COP og hvers vegna eru þær tvær með mismunandi númer, 17 og 31?

COP er skammstöfun á „Conference of the Parties“, þ.e. aðildarríkjaþing. Það er æðsta ákvörðunarvald alþjóðasamnings. Sameinuðu þjóðirnar skipuleggja þessar ráðstefnur með þátttöku æðstu fulltrúa ríkja, svæðisbundinna stofnana og frjálsra félagasamtaka.

Loftslags-COP

Þekktasta COP-ráðstefnan er loftslagsráðstefnan, sem haldin er árlega á mismunandi stöðum í heiminum.

Á COP-ráðstefnunni í Frakklandi árið 2015 varð Parísarsamningurinn um loftslagsbreytingar til. Markmið samningsins er að halda hlýnun jarðar vel innan við 2 gráður á Celsíus, helst við 1,5 gráður, miðað við tímann fyrir iðnbyltingu. Síðan þá hafa Sameinuðu þjóðirnar staðfest að heimurinn muni ekki ná þessu markmiði og að gert sé ráð fyrir að hlýnunin nái að minnsta kosti 1,8 °C. Nú er forgangsatriði að halda framúrkeyrslunni skammvinnri og lítilli og vinna að því að lækka hitastigið aftur í kjölfarið.

COP-ráðstefnan í París var 21. loftslagsráðstefnan, þ.e. COP21. Hinn 9. nóvember hefst 31. ráðstefnan í Antalya –COP31.

Í ár verður ábyrgð á ráðstefnunni í fyrsta sinn skipt á milli Tyrklands og Ástralíu. Tyrkland verður gestgjafi ráðstefnunnar og sér um þá skipulagningu sem fylgir því að stýra gríðarstórum alþjóðlegum viðburði. Ástralía mun setja dagskrána og leiða samningaviðræðurnar í samstarfi við Kyrrahafseyríkin.

Ráðstefnan er kynnt sem „COP framtíðarinnar“ og verður samið um málefni á borð við aðlögun að áhrifum loftslagsbreytinga, samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda, loftslagsfjármögnun fyrir þróunarlönd og réttlát umskipti fyrir launafólk og samfélög.

Líffræðileg fjölbreytni-COP

Einnig er til COP-ráðstefna helguð líffræðilegri fjölbreytni. Hún fjallar um „Samninginn um líffræðilega fjölbreytni“ og er haldin annað hvert ár. COP17 um líffræðilega fjölbreytni verður haldin í Jerevan í Armeníu frá og með 19. október.

Samningurinn um líffræðilega fjölbreytni var undirritaður af 150 þjóðarleiðtogum á Ríó-ráðstefnunni árið 1992 og miðar að verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Hann hefur nú verið fullgiltur af 195 ríkjum auk Evrópusambandsins, en ekki af Bandaríkjunum eða Vatíkaninu.

Í ár munu ríkin í fyrsta sinn meta árangur sinn við innleiðingu Kunming-Montreal-rammans um líffræðilega fjölbreytni(KMGBF).

Samið var um rammann árið 2022 og meðal markmiða hans er að endurheimta 30% af röskuðum vistkerfum fyrir árið 2030 og vernda 30% af landi, vötnum og hafi. Þar var einnig sett það markmið að stöðva útdauða þekktra tegunda í útrýmingarhættu af mannavöldum. Fyrir árið 2050 er stefnt að því að stofnar villtra innlendra tegunda hafi vaxið upp í heilbrigða og þolgóða stærð.

COP31 fjallar um loftslagsbreytingar. Tamanía í Ástralíu.
COP31 fjallar um loftslagsbreytingar. Tamanía í Ástralíu. Mynd: Matt Palmer/Unsplash

Hver eru tengslin á milli COP-ráðstefnanna um loftslag og líffræðilega fjölbreytni?

Ráðstefnurnar eru aðskildar og óháðar hvor annarri, en markmið þeirra eru samofin.

Loftslagsbreytingar eiga stóran þátt í hnignun líffræðilegrar fjölbreytni. Búsvæði, vistkerfi og fari dýra verða öll fyrir áhrifum af hærra hitastigi og öfgakenndari veðuratburðum. Útdauði tegunda eykst einungis með loftslagsbreytingum.

COP17 fjallar um líffræðilega fjölbreytni. Mynd: Myléne /
COP17 fjallar um líffræðilega fjölbreytni. Mynd: Myléne / Pixabay

Líffræðileg fjölbreytni er nauðsynleg til að draga úr áhrifum loftslagsbreytinga. Land og höf virka sem náttúruleg kolefnisforðabúr og binda helming þeirrar losunar sem stafar af mannavöldum. Skógar, fenjaskógar og votlendi leggja öll sitt af mörkum. Talið er að verndun þessara svæða sé lykilatriði til að draga úr þriðjungi losunar gróðurhúsalofttegunda á næsta áratug.

Kvenkyns Iguana iguana frá Margarita-eyju. Tegund í útrýmingarhættu sem fannst í náttúrulegu umhverfi. Mynd: Wilfredor/Creative Commons Zero, Public Domain Dedication
Kvenkyns Iguana iguana frá Margarita-eyju. Tegund í útrýmingarhættu sem fannst í náttúrulegu umhverfi. Mynd: Wilfredor/Creative Commons Zero, Public Domain Dedication

Hvers vegna skiptir þetta máli?

Líffræðileg fjölbreytni stendur frammi fyrir fordæmalausri kreppu. Allt að ein milljón tegunda er í útrýmingarhættu.

Á hverju ári ryður mannkynið 10 milljónir hektara af skógi, svæði sem jafngildir stærð Portúgals.

Í ESB hefur algengum fuglum fækkað um 17% á árunum 1990–2024. Aðeins helmingur náttúrulegrar líffræðilegrar fjölbreytni Bretlands er enn óskertur.

Framtíð líffræðilegrar fjölbreytni er samofin framtíð okkar. Við þurfum á líffræðilegri fjölbreytni að halda, ekki aðeins til að draga úr loftslagsbreytingum, heldur einnig vegna matvæla, heilsu, náttúruauðlinda og sjálfbærs efnahagslífs. Niðurstöður beggja ráðstefnanna munu skipta sköpum um hvernig framtíð okkar verður.

Fyrsta aðildarríkjaráðstefnan (COP1) um úthafssáttmálann verðuir haldin í byrjun næsta árs 2027. Mynd: Sean Oulashin/Unsplash
Fyrsta aðildarríkjaráðstefnan (COP1) um úthafssáttmálann verðuir haldin í byrjun næsta árs 2027. Mynd: Sean Oulashin/Unsplash

Horft fram á veginn

COP-ráðstefnurnar um loftslag og líffræðilega fjölbreytni eru ekki þær einu. Haldnar eru fjölmargar COP-ráðstefnur á grundvelli ýmissa sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Til dæmis verður fyrsta aðildarríkjaráðstefnan (COP1) um úthafssáttmálann (samninginn um líffræðilega fjölbreytni utan lögsögu ríkja) haldin dagana 11. til 22. janúar í New York. Sjöunda aðildarríkjaráðstefna Minamata-samningsins um kvikasilfur (COP7) verður haldin í Genf í Sviss í september 2027.

COP32 um loftslagsmál verður haldin á næsta ári dagana 8.–19. nóvember í Addis Ababa í Eþíópíu. COP18 um líffræðilega fjölbreytni verður haldin síðla árs 2028.

Nánari upplýsingar má finna í yfrlit  UNRIC um líffræðilega fjölbreytni og um loftslagsbreytingar.