Þrjú Norðurlandanna; Danmörk, Finnland og Svíþjóð voru á meðal 12 ríkja sem undirrituðu fyrstu yfirlýsingu varðandi upplýsingaheilindi um loftslagsbreytingar á COP30, Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Ríkin tólf heita því að spyrna fótum við flóði rangfærslna og slá skjaldborg um þá sem eru fremstir í víglínunni í baráttu í þágu sannleikans: umhverfisblaðamenn, vísindamenn og fræðimenn.
Yfirlýsingin var gefin út á COP30 í Belém í Brasilíu í gær, 12.nóvember, innan vébanda Hnattræns átaks um upplýsingaheildindi. Í henni er hvatt til að taka ákveðin skref til höfuðs þeim, sem dreifa ósannindum um loftslagsmál. Þá er þeim heitin vernd frá áreiti og árásum, sem byggja málflutning sinn á staðreyndum.
Upplýsingaheilindi til umfjöllunar á COP30
Brasilía hefur þegar veitt einni milljón dollara til hnattræns sjóðs í tengslum við átakið. Þegar hafa borist 447 tilllögur um aðgerðir frá nærri 100 ríkjum. Nærri tveir þriðju hlutar tillagnanna eru frá þróunarríkjum.
Upplýsingaóreiða í upplýsingamálum er nú í fyrsta skipti hluti af aðgerðaáætlun á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Luiz Inácio Lula da Silva forseti Brasilíu lagði áherslu á nauðsyn þess að berjast gegn afneitun í loftslagsmálum í setningarræðu sinni á COP30. „Myrkraöfl, sem þrífast á öld rangfærslna, hafna ekki aðeins vísindalegum staðreyndum, heldur einnig árangri fjölþjóðasamstarfs,” sagði Lula. „Þau ná tökum á algóryþþmum, sá hatri og kynda undir ótta. Þau ráðast á stofnanir, vísindi og háskóla. Það er kominn tími til að skora þessi öfl á hólm.”
Í yfirlýsingunni er hvatt til að efla áreiðanlegar upplýsingar um loftslagsmál á innlendum jafnt sem alþjóðlegum vettvangi. Slíkt beri að gera með virðingu fyrir alþjóða mannréttindalögum, þar á meðal tjáningarfrelsi, að leiðarljósi. Jafnframt er heitið stuðningi við fjölbreytta og varanlega fjölmiðlaflóru til að tryggja áreiðanlega og rétta ummfjöllun um loftslags- og umhverfismál.
Ráðist á persónur
Charolotte Scaddan ráðgjafi Sameinuðu þjóðanna í þessum málaflokki sagði á blaðamannafundi á COP30 að „þeir sem dreifa rangindum um loftslagsmál eru ekki aðeins að afneita loftslagsbreytingum. Þeir grafa undan aðgerðum með því að ráðst á fræðimenn, vísindamenn og blaðamenn persónulega. Sáð er efa um vísindalegan samhljóm um loftslagsbreytingar og komið af stað kviksögum um loftslagslausnir.”
Tólf ríki hafa þegar stutt yfirlýsinguna. Þau eru Belgía, Brasilía, Danmörk, Finnland, Frakkland, Holland, Kanada, Síle, Spánn, Svíþjóð, Úrúgvæ og Þýskaland.
