A-Ö Efnisyfirlit

COP31: Guterres segir að skattur á gróða olíufyrirtækja geti hjálpað til við að fjármagna orkuskiptin

António Guterres á fundi í tengslum við COP31 í dag. Mynd: © UN Climate Change - Kiara Worth)

COP31. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur varað við því að jarðefnaeldsneyti knýi ekki aðeins loftslagsvána heldur hafi það einnig í för með sér háan efnahags- og öryggiskostnað – eins og ástandið í Mið-Austurlöndum hefur afhjúpað.

Í ávarpi sínu á COP31, loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Antalya í Tyrklandi, benti aðalframkvæmdastjórinn á að frá því að átökin hófust hefði Evrópusambandið eitt og sér greitt meira en 100 milljarða evra í aukinn kostnað vegna innflutnings jarðefnaeldsneytis – án þess að fá „eina einustu viðbótarsameind af eldsneyti í staðinn.“

Auk þess hefur bensínverð hækkað um 26 prósent – og verð á dísilolíu um 38 prósent í 130 löndum.

Draga úr ósjálfstæði

„Á sama tíma stefnir í að níu olíufélög raki saman meira en 95 milljörðum Bandaríkjadala á aðeins þremur mánuðum,“ sagði Guterres. „Það er meira en einn milljarður dala á dag.“

„Eina svarið er að draga úr sjálfu ósjálfstæðinu – með hreinni orku, raforkunetum, orkugeymslu, orkunýtni og rafvæðingu.“

Guterres hvatti til aðgerða í ræðu á loftslagsaðgerðaviku í London.
Guterres

Aðalframkvæmdastjórinn hvatti ríki sem flytja inn jarðefnaeldsneyti til að draga úr berskjöldun sinni og auka um leið aðgengi að hreinni orku. Jafnframt sagði hann að framleiðsluríki þyrftu að auka fjölbreytni í efnahagslífi sínu og búa sig undir breyttar tekjur, atvinnugreinar og störf.

„Skattlagning á hvalrekagróða af jarðefnaeldsneyti getur hjálpað til við að fjármagna þetta allt – og verndað fjölskyldur fyrir næsta verðáfalli,“ sagði Guterres.

Sjá nánar um COP31 hér og hér.