COVID-19: 47 milljónir kvenna fátækt að bráð

0
727
COVDI 19 og fátækt kvenna
Kona með barn í fanginu í fátæktra hverfi í Dhaka í Bangladesh.

47 milljónir kvenna til viðbóta munu líklega verða fátækt að bráð vegna kórónaveirufaraldursins og afleiðinga hans. Þetta mun snúa við áratugalangri þróun í að uppræta sárustu fátækt. Til þessa benda nýjar upplýsingar sem Jafnréttis- og Þróunarstofnanir Sameinuðu þjóðanna, UN Women  og UNDP, birtu í dag.

Tölurnar benda til 9.1% aukningu í fjölda fátækra á meðal kvenna.

Áður en  COVID-19 reið yfir var búist við að þetta hlutfall myndi lækka um 2.7% frá 2019 til 2021.

Útlit er fyrir að þótt faraldurinn muni auka á fátækt almennt í heiminum, muni konur verða hlutfallslega harðar úti. Sérstaklega konur á barneignaaldri.

Frá og með 2021 er því spáð að fyrir hverja 100 karla á aldrinum 25 til 34 ára sem búa við örbirgði verði 118 konur. Þeir sem lifa á 1.90 Bandaríkjadal á dag eða minna teljast búa við örbirgð.  Búist er við að þetta bil breikki enn og 121 kona verði á hverja 100 karla árið 2030.

Tölurnar hafa verið teknar hafa verið saman í skýrslu sem nefnist From Insights to Action: Gender Equality in the wake of COVID-19.  Þær benda til að 96 milljónir falli í fátæktargildru fyrir 2021, þar af 47 milljónir kvenna og stúlkna. Að þeim fjölda viðbættum, munu 435 milljónir kvenna í heiminum lífa við sárustu fátækt. Ekki er útlit fyrir að sú tala lækka niður í það sem hún var fyrir COVID-19  fyrir 2030.

Heimsmarkmiðin í hættu

Phumzile Mlambo-Ngcuka, forstjóri Jafnréttisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UN Women) segir að fjölgun kvenna í fátækasta hópnum sé “til marks um djúpstæðann vanda” við uppbyggingu samfélags okkar og hagkerfis.

„Við vitum að konur axla mesta ábyrgð við sinna fjölskyldunni. Þær hafa lægri tekjur, spara minna og gegna óöruggustu störfunum. Konur eiga 19% meira á hættu að missa vinnu en karlar.“

Heimsfaraldurinn stefnir í hættu þeim fyrirætlunum um upprætingu sárustu fátæktar sem stefnt er að í Heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun fyrir 2030. Ástæða er til að óttast að í raun verði ástandið enn verra. Í  þessari nýju spá er eingöngu gengið út frá þróun þjóðarframleiðslu. Aðrir þættir eru ekki teknir með í reikninginn, eins og að konur neyðist til að yfirgefa vinnumarkaðinn til að taka að sér umsjón barna.

Fjárfestingar í jafnrétti

Achim Steiner forstjóri Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP) telur að 100 milljónir kvenna geti brotið af sér hlekki fátæktar ef ríkisstjórnir auka aðgang þeirra að menntun og fjölskyldustýringu,og sanngjörnum og jöfnum launum.

„Konur bera þyngstu byrðarnar af völdum COVID-19 því meiri líkur eru á að þær missi lífsviðurværi sit og minni líkur á að þær njóti félagslegrar verndar,“ segir Steiner.

„Fjárfestingar í jafnrétti kynjanna er ekki aðeins skynsamar og viðráðanlegur heldur brýnn valkostur ríkisstjórna ef þær vilja snúa við áhrifum faraldursins á baráttuna gegn fátækt.“

Sjá nánar hér.