COVID-19: Aukin mismunun gagnvart hinsegin fólki

0
855

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að mismunun gagnvart hinsegin fólki hafi aukist vegna COVID-19 faraldursins.

Alþjóðlegur dagur gegn hatri á samkynhneigðum, tvíkynheigðum og transfólki er mánudaginn 17.maí.

Hindrað í aðgengi að þjónustu

Í ávarpi á alþjóðlega daginn segir António Guterres að LGBTIQ+ fólk um allan heim sæti mismunun fyrir þær sakir einar að vera eins og það er.

„Frá upphafi heimsfaraldursins hafa Sameinuðu þjóðirnar orðið varar við meiri mismunun, ofbeldi og haturs-orðræðu. Aukin dæmi eru um félagslega- og efnahagslega útilokun og smánun gagnvart hinsegin fólki. Þá hefur LGBTIQ+ fólk verið hindrað í aðgengi að helsugæslu, menntun, atvinnu og grundvallarþjónustu. Enn eru dæmi um að afturför hvað varðar lagalega- og félagslega vernd grundvallarmannréttinda þessa hóps.”

Undanfarin ár hefur verið haldið upp á Alþjóðlegan dag gegn hatri á samkynhneigðum, tvíkynheigðum og transfólki 17.maí.  Dagurinn er ekki Alþjóðlegur dagur á vegum Sameinuðu þjóðanna heldur grasrótarsamtaka. Aðalframkvæmdastjórinn hefur hins vegar gefið út ávarp í tilefni dagsins. Í dag, mánudag, verður hrundið af stað herferð á vegum samtakanna gegn mismunun í garð hinsegin fólks.

Samkynhneigð af lista yfir sjúkdóma

Grasrótarsamtök völdu 17.maí sökum þess að þann dag árið 1990 var samkynhneigð tekin af lista Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) yfir sjúkdóma.

Aðalframkvæmdastjórinn bendir á í ávarpi sínu að einn af hornsteinum Heimsmarkmiðanna um sjálfbæra þróun sé að takast á við ójöfnuð. Tryggja ber að enginn sé skilinn eftir og allir njóti réttinda sinna.

„Nú þegar endurreisnarstarf eftir heimsfaraldurinn er að hefjast ber að taka raunhæf skref til að afnema lög sem fela í sér mismunun. Takast verður á við ofbeldi og mismunun vegna kynhneigðar og kyn-skilgreiningar. Ráðast þarf að rótum slíks óréttlætis,“ segir Guterres.

„Sameinuðu þjóðirnar standa í fylkingarbrjósti fyrir mannlega reisn og réttindi allra, þar á meðal hinsegin fólks – LGBTIQ+.  Við skulum taka höndum saman um að skapa heim þar sem allir geta lifað frjálsir og jafnir við reisn og réttindi, sama hver þeir eru, hvar þeir búa eða hverja þeir elska.”

Sjá einnig hér.