A-Ö Efnisyfirlit

Danir í forystu Öryggisráðsins í marsmánuði

Christina Markus Lassen fastafulltrúi Dana ávarpar Öryggisráðið 2024.
Christina Markus Lassen fastafulltrúi Dana ávarpar Öryggisráðið 2024. Mynd: UN Photo/Loey Felipe

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna

Danmörk tók við forystu í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna af Kína um mánaðamótin febrúar og mars og geg ir formennskunni í einn mánuð. 

Aðildarríkin fimmtán skiptast á um forystu.

Christina Markus Lassen fastafulltrúi Danmerkur sagði á blaðamannafundi að Danir stefndu að því að vera uppbyggilegir, skapandi og samkvæmir sjálfum sér í forystu ráðsins. „Við höfum bjargfasta trú á alþjóðalögum og hlutverki Öryggisráðsins í að vera þýðingarmesti vettvangur heims fyrir frið og öryggi.”

Danska sendinefndin á Allsherjarþinginu í dag: Christina Markus Lassen, fastafulltrúi Dana fyrir miðju og Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra til hægri.
Danska sendinefndin á Allsherjarþinginu: Christina Markus Lassen, fastafulltrúi Dana fyrir miðju og Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra til hægri.

Frá Gasa til Úkraínu

Lassen sagði að á meðal þýðingarmestu málefna sem tekin yrðu fyrir á fundum væru Gasasvæðið, Jemen, Sýrland og Afganistan. Hún sagði að „konur, friður og öryggi, loftslagsmál, friður og öryggi” yrðu einnig á dagskrá ráðsins.

Hún lagði áherslu á mikilvægi milliríkjasamskipta og alþjóðalaga. „Friðargæslusveitir eru að okkar mati ómissandi tæki til að hafa stjórn á átökum, tæki sem ber að standa Öryggisráðinu til boða.“

Enn benti hún á að Úkraínumálið yrði á dagskrá ráðsins og Danir leggðu áherslu á að friðsamlega lausn yrði að virða fullveldi Úkraínu.

Frakkar taka við forystu af Dönum í Öryggisráðinu í apríl.

Danir voru á síðasta ári kosnir í Öryggisráðið til tveggja ára 2025 og 2026. Er þetta í fimmta skipti sem Danmörk á sæti í ráðinu.