A-Ö Efnisyfirlit

Eyðilegging blasir við hjálparsveit Sameinuðu þjóðanna við komuna til suðurhluta Líbanon

Bygging í rústum í suðurhluta Líbanon.© UNICEF
Bygging í rústum í suðurhluta Líbanon.© UNICEF

Hjálparsveit UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna kom að stóru sjúkrahúsi í bænum Tebnine í suðurhluta Líbanon á fimmtudag, en þar blasti við gríðarleg eyðilegging og yfirþyrmandi neyð.

„Ég kom hingað fyrir tveimur vikum og við erum komin aftur í dag með bílalest … en það sem er öðruvísi í dag er að öll gatan fyrir framan sjúkrahúsið er gjöreyðilögð,“ sagði Christophe Boulierac, talsmaður Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.

Í einkaviðtali við UN News á meðan hann var í sendiförinni sýndi Boulierac að þótt sjúkrahúsið stæði enn, þá var mikið af því sem hafði verið í kringum það horfið.

Við hliðina á rústahrúgum lágu hrunin hús í rústum, innan um brunnin bílhræ á hverju strái.

„Gjörsamlega eyðilagt“

Sjúkrahúsið er „nokkurn veginn starfhæft, en það var að verða uppiskroppa með vatn, lyf og orku. Ég veit ekki með rafstöðina, en hún virkar líklega ekki sem skyldi,“ hélt fulltrúi  UNICEF áfram, áður en hann benti á stóra sólarrafhlöðukerfið sem stofnunin hafði sett upp við hliðina á sjúkrahúsinu og virtist hafa verið sprengt í loft upp.

„Allar byggingarnar í götunum rétt hjá sjúkrahúsunum, þær voru eðlilegar fyrir tveimur vikum en í dag eru þær gjörsamlega, gjörsamlega eyðilagðar,“ lagði Boulierac áherslu á.

„Þarna má sjá fyrsta húsið, annað húsið, þriðja húsið, fjórða húsið, fimmta húsið, sjötta, sjöunda … að minnsta kosti átta hús gjörsamlega eyðilögð.“

Örvæntingarfullar aðgerðir

Á meðan brothætt vopnahlé við Ísrael, sem hófst 16. apríl, heldur enn, streymir óþekktur fjöldi fólks aftur til heimila sinna í suðurhlutanum, aðeins til að komast að því að sum þeirra eru einfaldlega jöfnuð við jörðu.

Ástandið er enn „mjög hættulegt, sérstaklega fyrir almenna borgara,“ sagði Boulierac og benti á miklar áskoranir varðandi aðgang að vatni, rafmagni, heilbrigðisþjónustu og menntun.

„Þetta er enn mjög óstöðugt og enn mjög óvíst, sérstaklega fyrir fólkið, þá rúmlega eina milljón manna sem þurfti að yfirgefa heimili sín 2. mars,“ daginn sem árásir Hezbollah á Ísrael ollu loftárásum Ísraela víðs vegar um Líbanon og hrintu af stað nýjustu kreppunni.

„Og af þeim, gleymum ekki þeim 400.000 börnum sem þurfa á öllu að halda,“ lagði starfsmaður UNICEF áherslu á.