Fjölbreytt dagskrá í tilefni geðheilbrigðisdagsins

0
459

 

 Plakat-2013-JPEG2

10.október 2013. Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn verður haldinn hátíðlegur með göngu frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðuholt og hátíðardagskrá í Flóa í Hörpu í dag 10. október.

Úrræði á sviði geðheilbrigðismála taka höndum saman um fjölbreytta dagskrá dagana 6. – 13. október í tilefni dagsins. Yfirskrift dagsins er Geðheilsa á efri árum. Vakin hefur verið athygli á því að mun fleira eldra fólk á við ýmis geðræn vandamál að stríða heldur en haldið hefur verið.  Á Alþjóða geðheilbrigðisdeginum verður sjónum almennings einkum beint að Geðheilsu á efri árum.

 

Dagskráin hefst með ávarpi borgarstjóra við Hallgrímskirkju kl. 16.00 þann 10. október. Því næst verður gengið niður Skólavörðuholt undir fjörugum tónlistarflutningi að Hörpu þar sem ljúfir tónar Vitatorgsbandsins munu hljóma til kl. 17:00. Þá hefst hátíðardagskráin með formlegum hætti með ávarpi forseta Íslands sem er verndari dagsins. Í kjölfarið mun Ómar Ragnarsson, fjölmiðlamaður og náttúruverndarsinni, segja frá eigin reynslu af geðrænum erfiðleikum.

Að loknum tónlistarflutningi verður styrkjum veitt úr fræðslu- og forvarnarsjóðnum Þú getur. Á sama tíma fer fram kynning á ýmsum úrræðum innan geðheilbrigðisgeirans og sala á 10okt. bolum í Hörpu. Boðið verður upp á kaffi og kleinur og 10% afsláttur verður af veitingum á veitingastaðnum Munnhörpunni á meðan dagskránni stendur

Eins og áður segir verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá í tilefni Alþjóða geðheilbrigðisdagsins dagana 6. – 13. október. Sem dæmi má nefna að geðveik guðþjónusta verður í Laugarneskirkju 6. okt. kl. 11:00, opið hús með ýmsum viðburðum verður í mörgum úrræðum fyrir fólk með geðraskanir, s.s. Læk, Vin, Hugarafli, Hlutverkasetri og Klúbbnum Geysi. Opið hús með tónlistardagskrá og „bílskúrssölu“ verður í húsakynnum Geðhjálpar, Túngötu 7, laugardaginn 12. október. Setning viðburðarvikunnar verður í Borgarbókasafninu Tryggvagötu mánudaginn 7. okt. kl. 12:15

(úr fréttatilkynningu, sjá nánar hér).