Drykkjarvatn. Salernis- og hreinlætisaðstaða. Milljarðar manna um allan heim hafa enn ekki aðgang að hreinu drykkjarvatni, salernis- og hreinlætisaðstöðu og eru fyrir vikið útsettir fyrir sjúdómum og félagslegri útilokun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). Skýrslan er gefin út í tilefni af Vatnsvikunnar, sem nú stendur yfir í Stokkhólmi.
Ójöfnuður

Í skýrslunni er einkum beint sjónum að árangri í að sjá heimsbyggðinni fyrir drykkjarvatni, salernis- og hreinlætisaðstöðu; og ójöfnuði í því sambandi. (Progress on Household Drinking Water and Sanitation 2000–2024: special focus on inequalities) Niðurstaðan er sú að árangur hafi náðst undanfarinn áratug, en engu að síður sé vandinn þrálátur. Einkum er það fólk sem býr í lágtekjuríkjum, í dreifbýli, börn, og þjóðernishlegir minnihlutahópar og frumbyggjar sem oftst hafa ekki þennan aðgang.
Fimm lykilatriði í skýrslunni:
- Þrátt fyrir framfarir frá 2015 hafa skortir fjórða hvern heimsbúa eða 2.1 milljarð aðgang að öruggu drykkjarvatni. 106 milljónir verða að gera sér að góðu óhreinsað yfirborðsvatn.
- 3.4 milljarðar njóta ekki öruggrar salernisaðstöðu og 354 ganga örna sinna undir berum himni.
- 1.7 milljarðar njóta ekki lágmarkshreinlætis á heimilum sínum, þar af 611 milljónir sem hafa enga slíka aðstöðu.
- Á hamfarasvæðum, hvort heldur vegna átaka eða náttúruhamfara, er aðgangur að drykkjaravtni 38% minni en annars staðar.
- Konur og unglingsstúlkar hafa samkvæmt upplýsingum frá 70 ríkjum oftast nær túrbindi eða tappa, en margar geta ekki skipt eins oft og þörf krefur.
UNIEF að störfum vegna flóða í Bangladesh. Mynd: UNICEF/Sultan Mahmud Mukut -
Sérstakur vandi unglingsstúlkna
„Þegar börn hafa ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni, salerni og hreinlæti, er heilsu þeirra, menntun og framtíð stefnt í voða,” segir Cecilia Scharp hjá UNICEF. „Þessi ójöfnuður kemur harðast niður á stúlkum. Útvegun vatns hvílir oft á þeirra herðum og þar að auki þurfa þær að glíma við hindranir þær eru á blæðingum. Við núverandi aðstæður erum við enn fjarri því en áður að tryggja hverju barni aðgang að öruggu barni og salernisaðstöðu.“
Vatnsvikan hefur verið haldin frá árinu 1991. Hún stendur yfir 24.-28.ágúst í Stokkhólmi og á netinu.
