Fleiri en 34 þúsund óbreyttir borgarar drepnir í Írak árið 2006

0
515
Nærri 6.400 íraskir borgarar voru drepnir í nóvember og desember, örlítið færri en undangengna tvo mánuði, samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttinda í Írak. Í skýrslunni segir að fjöldamorð, aftökur án dóms og laga og ofbeldi trúarhópa viðgengjust án þess að yfirvöld fengju rönd við reist.  

Tala látinna óbreyttra borgara á árinu 2006 er 34.452 auk þess sem 36.685 hafa særst í ofbeldisöldunni.   

“Fólk hefur verið tekið af lífi án dóms og laga í Bagdad og öðrum landshlutum. Lík sem kastað hefur verið út á götur, í ár eða husluð í fjöldagröfum, finnast með reglubundnu millibili. Í mörgum tilfellum hefur fólkið verið pyntað, bundið á höndum og fótum og stundum hálshöggvið”, segir í mannréttindaskýrslu UNAMI – Aðstoðarsveit SÞ í Írak um tvo síðustu mánuði 2006. Vígasveitir beggja kvísla múslima, Sunníta og Sjíta, eru sagðar bera ábyrgð á voðaverkunum.  

Sjá meira: http://www.un.org/apps/news/story.asp?NewsID=21241&Cr=iraq&Cr1=