A-Ö Efnisyfirlit

Fólksflutningar gegna lykilhlutverki í hagkerfi heimsins

Innflytjendur eru 3,7% af íbúum heimsins.
Innflytjendur eru 3,7% af íbúum heimsins.

Með yfir 900 milljarða í peningasendingum til heimalanda sinna leggja innflytjendur verulega af mörkum til efnahagslífs og þróunar. Þeir hafa einnig jákvæð áhrif á þau lönd sem taka á móti þeim, samkvæmt nýrri skýrslu frá Alþjóða fólksflutningastofnuninni (IOM).

Samfélög brottfluttra gegna mikilvægu hlutverki við að viðhalda efnahagslegum og félagslegum tengslum milli landa, einkum með þekkingarmiðlun, fjárfestingum og peningasendingum.

Árið 2024 voru peningasendingar áætlaðar 905 milljarðar Bandaríkjadala, þar af 685 milljarðar til lág- og meðaltekjulanda, að því er fram kemur í skýrslunni.

Alþjóðlegur dagur farandfólks
Farandfólk.

Þetta flæði er nú meira en samanlagt verðmæti opinberrar þróunaraðstoðar og beinnar erlendrar fjárfestingar.

Ríkustu löndin, einkum Bandaríkin og mörg Evrópulönd, hafa dregið verulega úr opinberri þróunaraðstoð á undanförnum árum.

Innflytjendur eru 3,7% af íbúum heimsins

Um mitt ár 2024 var áætlað að alþjóðlegir innflytjendur væru 304 milljónir, eða um 3,7% af íbúum heimsins, hlutfall sem hefur aukist jafnt og þétt með tímanum. Fjöldi alþjóðlegra farandverkamanna hefur einnig aukist og á áratugnum 2013–2022 fjölgaði þeim um meira en 30 milljónir, samkvæmt nýjustu tiltæku tölum.

„Alls staðar í heiminum stuðla fólksflutningar að atvinnusköpun, hagvexti, stöðugleika og félagslegri samheldni,“ sagði Amy Pope, framkvæmdastjóri IOM.

Farandfólk á ferð.
Farandfólk á ferð. Mynd: UNHCR:

Fjölgun löglegra leiða

Í skýrslunni eru kynntar áþreifanlegar aðgerðir til að vernda þennan ávinning, þar á meðal að fjölga öruggum og löglegum fólksflutningaleiðum, draga úr kostnaði við peningasendingar og styðja við færniflutning og enduraðlögun.

„Sérhvert land hefur rétt til að móta sína eigin stefnu í fólksflutningamálum. Staðreyndir sýna þó að þegar ríki vinna saman á svæðis- og alþjóðavettvangi er betur hægt að stjórna fólksflutningum, sem stuðlar að því að styrkja traust almennings og skapa meiri ávinning fyrir efnahagslífið, samfélög og fólk á faraldsfæti,“ segir Amy Pope.