A-Ö Efnisyfirlit

Friðargæsluliðar kveðja Líbanon og Vestur-Sahara

UNIFIL hefur verið afl í þágu stöðugleika í suðurhluta Líbanon.
UNIFIL hefur verið afl í þágu stöðugleika í suðurhluta Líbanon. Mynd: UNIFIL

Yfirmaður friðargæslu Sameinuðu þjóðanna hefur varað við því að brotthvarf friðargæsluliða samtakanna frá Líbanon og Vestur-Sahara geti skilið eftir hættulegt tómarúm í öryggismálum.

Sendisveit Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Sahara var lögð niður 31. október eftir 35 ára starf. Í Líbanon á friðargæsluliðið, sem hefur gætt landamæranna að Ísrael frá árinu 1978, að hætta störfum í lok ársins.

Öryggisráðið er enn klofið um hvað, ef nokkuð, eigi að taka við af þeim.

Eftirlisstöð í Líbanon.
Eftirlisstöð í Líbanon. Mynd: UN Photo/Gernot Maier

48 ára umboð rennur út

UNIFIL var stofnað af öryggisráði Sameinuðu þjóðanna 19. mars 1978 með þrjú meginmarkmið: að staðfesta brotthvarf ísraelskra hersveita frá Líbanon, að endurreisa alþjóðlegan frið og öryggi og að aðstoða ríkisstjórn Líbanons við að endurheimta yfirráð sín á svæðinu.

Fyrstu friðargæsluliðar sendisveitarinnar komu 23. mars 1978.

Í ágúst 2025 samþykkti öryggisráð Sameinuðu þjóðanna einróma að framlengja ekki umboð UNIFIL fram yfir árslok 2026. Því er gert ráð fyrir að undirbúningur að brotthvarfi sendisveitarinnar hefjist í janúar 2027.

Um 7.500 friðargæsluliðar starfa enn með bráðabirgðaherliði Sameinuðu þjóðanna í Líbanon (UNIFIL). Liðið gegnir hlutverki milligöngumanns milli herja Líbanons og Ísraels, fylgist með brotum og greiðir fyrir mannúðaraðstoð.

António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lagði fram valkosti í júní, en öryggisráðið hefur enn ekki komist að samkomulagi um neitt framhaldsfyrirkomulag.

MINURSO lauk störfum við lok októbermánaðar.
MINURSO lauk störfum við lok októbermánaðar. UN Photo/Martine Perret

Endalok í Vestur-Sahara

Sama pattstaða hefur þegar bundið enda á viðveru Sameinuðu þjóðanna í Vestur-Sahara. Sendisveit Sameinuðu þjóðanna vegna þjóðaratkvæðagreiðslu í Vestur-Sahara (MINURSO) var lögð niður 31. október eftir að ráðsmönnum tókst ekki að ná samkomulagi um að endurnýja umboð hennar.

Rússland beitti neitunarvaldi gegn drögum Bandaríkjanna sem hefðu mótað sendisveitina upp á nýtt í kringum lausn sem byggðist á sjálfstjórn undir fullveldi Marokkós. Mótdrög Rússa, þar sem kallað var eftir endurnýjun til eins árs, náðu ekki þeim níu atkvæðum sem þurfti til samþykktar.

Sveit MINURSO ekur um Vestur-Sahara.
Sveit MINURSO ekur um Vestur-Sahara. Mynd: UN Photo/Martine Perret

MINURSO var komið á fót árið 1991 til að hafa eftirlit með vopnahléi milli Marokkós og Polisario-hreyfingarinnar. Aldrei var haldin sú þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfsákvörðunarrétt sem sendisveitinni var ætlað að skipuleggja, og átök hófust að nýju á svæðinu árið 2020.

Þegar umboð hennar rann út hafði sendisveitin um 160 hereftirlitsmenn og um 180 borgaralega starfsmenn og tengt starfsfólk, auk sérstakrar sprengjuleitardeildar.

Sameinuðu þjóðirnar hvetja aðila til að sýna stillingu og eru áfram staðráðnar í að finna pólitíska lausn sem tryggir sjálfsákvörðunarrétt íbúa Vestur-Sahara.

Sjá nánar hér.