Gasasvæðið.
Stóraukin mannúðaraðstoð berst nú til Gasasvæðisins þökk sé vopnahléinu sem gekk í gildi 19.janúar. Hætta á hungursneyð þar hefur að sama skapi minnkað. Ef vopnahléð heldur hins vegar ekki gæti ástandið skjótt versnað.
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna, (WFP, World Food Programme) hefur komið Palestínumönnum til hjálpar með stóraukinni lífsnauðsynlegri aðstoð. Bakarí hafa fengið hráefni og íbúar reiðufé til að byggja upp líf sitt að nýju á sama tíma og blásið er nýju lífi í staðbundið hagkerfið.
13.febrúar höfðu WFP og samstarfsaðilar þeirra flutt 47 þúsund tonn af matvælaaðstoð til Gasa.
Fimm sinnum meiri aðstoð en í október
„Þetta er næstum þrefalt meira magn en hægt varð flytja þangað í desember og fimm sinnum meira en í október,” segir Antoine Renard svæðisstjóri WFP í Palestínu.
Á allra síðustu vikum hefur WFP náð til 862 400 manna með neyðaraðstoð; matarpakka, heitar máltíðir, hveiti og brauð. Þá hefur konum með börn á brjósti og börnum undir fimm ára aldri verið sinnt sérstaklega.
Þarfirnar á Gasa eru gríðarlega miklar. Neyðaraðstoð WFP kostar 219 milljónir Bandaríkjadala næsta hálfa árið en hún nær til 1.5 milljóna manna. Þörf er á meiri fjárveitingum til að halda úti neyðarþjónustu og endurreisa markaði á Gasa og Vesturbakka Jórdanar á árínu 2025. WFP er í stakk búið að senda 30 þúsund tonn af mat í hverjum mánuði, þar á meðal matarpakka.
Milljónir máltíða
Dreifing heitra máltíða hefur hafist að nýju í norðurhluta Gasa. Fyrst um sinn verður dreift 20 þúsund máltíðum í Beit Lahiya, og 1500 í Rafah. Frá því vopnahléið gekk í gildi hafa 7 milljónir máltíða verið reiddar fram um allt Gasasvæðið, en 60 eldhús eru rekin í mið- og suðurhlutanum. Sum þeirra hafa verið færð til því hundruð þúsunda manna hafa verið á faraldsfæti.
En hvað geta mannúðarstofnanir gert almennt til að greiða fyrir endurreisn innan um rústirnar?
„Það er ekki á færi mannúðarstofnana að endurbyggja Gasasvæðið,“ sagði Stuart Kent hjá WFP á Gasa. „Til þess þarf mikið fé, stjórnun, pólitískan vilja og frjálsa vörudreifingu. Okkar starf er hins vegar að halda fólki á lífi.“
Antoine Renard segir: „Vopnahléið er þýðingarmikið, ekki aðeins til að koma matvælaastoð til skila, heldur einnig almennari aðstoð þegar neyðaraðstoð sleppir.“
Sjá einnig hér.
