A-Ö Efnisyfirlit

Gasa: Hálf milljón manna án matvælaaðstoðar vegna niðurskurðar

"Við höfum verið heila viku án brauðs.Einn poki af hveiti skiptir sköpum fyrir okkur," segir konma í Al Saraya-búðunum. Hún hefur misst eiginmann og þrjá syni í stríðinu og hefur engar tekjur. Mynd: WFP/Mohamed Hinnawi.
"Við höfum verið heila viku án brauðs.Einn poki af hveiti skiptir sköpum fyrir okkur," segir konma í Al Saraya-búðunum. Hún hefur misst eiginmann og þrjá syni í stríðinu og hefur engar tekjur. Mynd: WFP/Mohamed Hinnawi.

Hungur. Fjárskortur hefur neytt Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) til að skera niður aðstoð við hungraðar fjölskyldur á Gasa-svæðinu um nærri þriðjung – ráðstöfun sem mun hafa áhrif á um 500 þúsund manns nú þegar vetur nálgast, að því er stofnunin tilkynnti á mánudag.

WFP sagði að matvælaaðstoð hennar „hefði verið líflína fyrir allt að 90 prósent fjölskyldna á Gaza“ undanfarin þrjú ár.

Frá því að vopnahléssamkomulag náðist milli Ísraels og vígamanna Hamas í október 2025 hafa teymi náð til um 1,6 milljóna manna mánaðarlega með matarpökkum, hveiti, brauði, heitum máltíðum, næringarstuðningi, skólanesti og fjárhagsaðstoð.

Matvæladreifing í birgðastöð á Gasa.
Matvæladreifing í birgðastöð á Gasa. Mynd: © WFP/Mohamad Al Hinnawi

„Bætt mannúðaraðgengi og afhending aðstoðar frá október 2025 hafa átt þátt í að draga úr fæðuóöryggi, en þessi árangur er enn brothættur og gæti fljótt gengið til baka ef fjárframlög til mannúðarmála halda áfram að dragast saman,“ varaði stofnunin við.

Skammtar, fjárhagsaðstoð og heitar máltíðir skornar niður

Í þessum mánuði styður WFP 1,1 milljón af viðkvæmasta fólkinu á hinu stríðshrjáða svæði, samanborið við 1,6 milljónir í september. Skammtar hafa verið helmingaðir, sem þýðir að fjölskyldur fá nú einn matarpakka í stað tveggja og minni poka af hveiti. Fjárhæð fjárhagsaðstoðar til 75 000 fjölskyldna hefur einnig verið lækkuð, og fjöldi heitra máltíða sem dreift er daglega um allt Gaza mun fækka úr 250 000 í 150 000.

„Fjölskyldur sem búa á svæðum sem erfitt er að komast að, meðal annars nálægt „gulu línunni“ sem markar yfirráð ísraelska hersins, munu fá heita máltíð annan hvern dag í stað daglega,“ sagði stofnunin.

Enn sem komið er getur WFP haldið áfram að styðja bakarí sem anna þriðjungi brauðþarfar Gaza, veitt 300.000 konum og börnum næringaraðstoð og útvegað 200.000 nemendum hollt skólanesti.

WFP varð að skera mavælaaðstoð á Vesturbakkanum niður um helming í byrjun september.
WFP varð að skera mavælaaðstoð á Vesturbakkanum niður um helming í byrjun september. Mynd: Hugh Rutherford/WFP

Hungur á neyðarstigi

Niðurskurðurinn kemur á afar viðkvæmum tíma á Gaza, þar sem meira en 80 prósent íbúa eru atvinnulaus, sem gerir það að verkum að margar fjölskyldur hafa ekki efni á fersku grænmeti og ávöxtum eða próteinríkri fæðu, jafnvel þegar slíkt er fáanlegt.

Um 67 prósent íbúa Gasa – áætlað um 1,4 milljónir manna – búa við bráðt fæðuóöryggi á neyðarstigi eða verra. Þótt hlutfallið hafi lækkað úr 77 prósentum í lok árs 2025 „er framförin enn hófleg og brothætt“, sagði WFP.

Um 200.000 manns búa enn við neyðarástand og þurfa tafarlausa matvælaaðstoð til að koma í veg fyrir að þeir deyi úr hungri.

Á sama tíma fær aðeins eitt af hverjum fimm börnum nægilega fjölbreytt fæði, og aðgangur að heilbrigðisþjónustu og annarri nauðsynlegri þjónustu er enn takmarkaður.

Brýn fjárþörf

WFP lagði áherslu á að nú þegar vetur nálgast væri brýn þörf á auknu fjármagni til að viðhalda neyðarmatvælaaðstoð, veita nauðsynlegan verkfræðistuðning og koma í veg fyrir vannæringu meðal ungra barna og þungaðra kvenna og kvenna með barn á brjósti.

Fjárframlög til starfseminnar í Palestínu árið 2026 nema innan við helmingi þess sem barst á fyrri árum, og stofnunin þarf brýnt á 450 milljónum dollara að halda til að viðhalda nauðsynlegri starfsemi á Gasa og Vesturbakkanum fram í mars.

WFP benti á að fjárskortur hefði einnig haft áhrif á starfsemina á Vesturbakkanum, þar sem fjöldi þeirra sem fá aðstoð var helmingaður – úr 400 000 í 200 000 – í september.

Sjá einnig: Gasa: 340 börn drepin, hér.