Gasa : Hungursneyð blasir við ef Ísraelar leyfa ekki matarflutninga

Gasasvæðið hefur nú verið lengur í herkví en nokkru sinni frá því átök blossuðu upp eftir árás Hamas á Ísrael. Philippe Lazzarini forstjóri Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA) segir að hungursneyð blasi nú við ef Ísraelsmenn leyfa ekki flutninga mannúðaraðstoðar til svæðisins.

Herkvíin hefur nú staðið yfir í þrjár vikur, sem er lengur en þvingunaraðgerðirnar fyrst eftir árásina 7.október 2023. Ísraelar hafa hindrað flutning matar vatns og lyfja inn á Gasasvæðið.

„Hver dagur sem líður án þess að aðstoð berist þýðir að börn leggjast svöng til svefns, sjúkdómar breiðast út og skortur eykst,“ skrifaði Lazzarini í færslu á samfélagsmiðlum. Hann sagði að Gasasvæðið nálgaðist nú hungursneyð.

Ísraelar banna hjálparsamtökum að koma sveltandi Gasasbúum til hjálpar.
Gasasvæðið: Ísraelar banna hjálparsamtökum að koma sveltandi Gasasbúum til hjálpar. Mynd: WFP

Sameiginleg refsing

Núverandi átök hófust þegar hryðjverkaárás undir forystu Hamas var gerð á Ísrael 7.október 2023. 1195 létust í árásnum og rúmlega 250 gíslar voru teknir. Í hefndarárásum Ísraels á Gasa hafa að minnsta kosti 50 þúsund látið lífið.

Á meðan á stuttu vopnhléi stóð var fjölda gíslanna sleppt gegn lausn palestínskra fanga

r ísraelskum fanglelsum. Hundruð, þar á meðal börn, hafa síðan látist eftir að Ísraelar hófu árásir sínar að nýju.

Lazzarini segir að bann við flutningum mannúðaraðstoðar felist í sér „sameiginlega refsingu“ íbúa Gasa. Mikill meirihluti þeirra eru konur og börn, og óbreyttir borgarar. Lazzarini krafðist þess að herkvínni verði aflétt, gíslum sleppt og flutningar verði leyfðir hindrunarlaust.

 

 

Fréttir