A-Ö Efnisyfirlit

Gasa: Sameinuðu þjóðirnar reiðubúnar með 170 þúsund tonn af hjálpargögnum

Barn við bráðabirgðaskýli.
Barn við bráðabirgðaskýli. Mynd: .© UNRWA

Gasasvæðið. Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt deilendur til að nota tækifærið, sem nú hefur gefist til að binda enda á átökin á Gasasvæðinu. Tom Fletcher yfirmaður OCHA, mannúðarskrifstofu Sameinuðu þjóðanna segir að nú sé hvort tveggja möguleiki á að koma lífsnauðsynlegri aðstoð til Palestínumanna og að tryggja lausn gísla.

„Við erum reiðubúin og fús til að láta til skarar skríða,“ sagði Fletcher.

„Við höfum um 170 þúsund tonn af matvælum lyfjum, skýlum og öðrum brýnum hjálpargögnum, sem við getum komið til Gasa frá nágrannasvæðum.“

Palestínumenn bera hjálpargögn til síns heima.
Palestínumenn bera hjálpargögn til síns heima. Mynd: UN News

Tilbúnir til að láta gísla lausa

Áður hafði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna brugðist á föstudag við yfirlýsingu Hamas.  Forysta Hamas hafði sagst reiðubúin að láta ísraelska gísla lausa í samræmi við friðaráætlun Bandaríkjanna. Hún miðar að því að binda enda á stríðið á Gasa. Hamas hefur fallist á hana skili frekari viðræður viðunandi árangri um nokkur lykilatriði.

Yfirlýsingin fól einnig í sér að Hamas væri reiðubúið til að víkja fyrir palestínskum aðilum við stjórn Gasasvæðisins. Slíkt yrði hluti af varanlegu samkomulagi til að binda enda á bardaga og byggi á  „palestínsri þjóðar-samstöðu, sem nyti arabísks og íslamsks stuðnings.”

„Aðalframkvæmdastjórinn fagnar yfirlýsingu Hamas þess efni að samstökin séu reiðubúin að láta gísla lausa og aðhafast á grunni nýlegra tillagna Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta sagði í yfirlýsingu talsmanns aðalframkvæmdastjórans fyrir hans hönd.

„Hann hvetur allar stríðandi fylkingar til að grípa tækifærið til að binda enda á hin sorglegu átöku á Gasa.“

Fágætt tækifæri

Yfirmaður Palestínu-flóttamannahjálparinnar (UNRWA), Philippe Lazzarini, sagði að tækifærið sem fælist í yfirlýsngu Hamas væri “sjaldgæf vonarglæta” um að hægt yrði að lina þjáningar Gasabúa.

„Menntun barna er forgangsatriði. UNRWA hefur sérþekkinguna og vinnuaflið til að 660 þúsund börn, sem búa nú innanumrúsitr, fái formlega menntun.“

Volker Türk Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna tók undir að síðustu atburðir fælu í sér „þýðingarmikið tækifæri” til að binda enda á „manndráp og þjáningar.”

Sjá einnig hér.