Óháð rannsóknarnefnd. Gasasvæðið. Ísrael hefur framið þjóðarmorð á Palestínumönnum á Gasasvæðinu að mati sjálfstæðrar alþjóðlegrar rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna. Nefndin skorar á Ísrael og öll ríki að virða lagalegar skuldbindingar samkvæmt alþjóðalögum og binda enda á þjóðarmorðið og refsa hinum seku.
Nefndin hefur undanfarin tvö ár rannsakað atburðarásina frá 7.október 2023. Í skýrslunni sem kynnt var í dag, 16.september 2025, kemst hún að þeirri niðurstöðu að ísraelsk stjórnvöld og ísraelskar öryggissveitir hafi framið afbrot sem falli undir fjóra af þeim fimm flokkum þjóðarmorðs, sem skilgreindir eru í Sáttmála um að hindra og refsa fyrir glæpi sem heyra undir þjóðarmorð.
Hér er um að ræða manndráp, að valda alvarlegum líkamlegum eða andlegum skaða. Ætlunin hafi verið af yfirlögðu ráði að skapa lífsskilyrði sem hafi falið sér tilraun til að tortíma Palestínumönnum að hluta eða að öllu leyti, auk þess að hindra barnsfæðingar.
„Ætlunin hafi verið að útrýma Palestínumönnum“
Yfirlýsingar borgaralegra og hernaðarlegra yfirvalda í Ísrael og aðgerðir ísraelskra öryggissveita benda til þess að ætlunin hafi verið að útrýma Palestínumönnum sem hópi á Gasasvæðinu með öllu eða að hluta til.
„Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að Ísrael beri ábyrgð á þjóðarmorði á Gasa,“ sagði Navi Pillay formaður nefndarinnar. „Það er ljóst að það er markmið að útrýma Palestínumönnum á Gasa með aðgerðum sem flokkast undir þau viðmið sem lýst er í sáttmálanum um þjóðarmorð.”
„Ábyrgðin á þessum voðaverkum liggur á æðstu stöðum hjá ísraelskum yfirvöldum. Þau hafa skipulagt þjóðarmorðsherferð undanfarin tvö ár með það að markmiði að útrúyma Palestínumönnum sem hópi á Gasa,“ sagði Pillay. „Nefndin komst einnig að þeirri niðurstöðu að Ísrael hafi látið undir höfuð leggjast að hindra og refsa fyrir þjóðarmorð, og hvorki rannsakað né sótt meinta brotamenn til saka.“
Mynd: UN News
Kerfisbundin brot
Nefndin fór í saumana á hernaðaraðgerðum Ísraels á Gasa. Á meðal þeirra brota, sem flokkuð voru undir mismunandi liði sáttmála um þjóðarmorð,voru manndráp og alvarleg meiðsl fordæmalauss fjölda Palestínumanna. Einnig að setja svæðið í algjöra herkví og koma í veg fyrir flutning mannúðaraðstoðar sem leitt hefur til hungurs. Að eyðileggja með kerfisbundnum hætti heilsugæslu og menntakerfi á Gasa. Þá beri Ísrael ábyrgð á kerfisbundnu kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi. Börn hafi verið bein skotmörk, kerfisbundnar og umfangsmiklar árásir hafi verið gerðar á trúarleg- og menningarleg mannvirki. Enn hafi fyrirskipanir Alþjóðadómstólsins verið virtar að vettugi.
Hliðsjón af máli Bosníu gegn Serbíu
Við að sýna fram á að þjóðarmorð hafi verið framið vísvitandi hafði nefndin hliðsjón af þeim fordæmum sem Alþjóðadómstóllinn setti í máli Bosníu gegn Serbíu. Nefndin fór í saumana á yfirlýsingum ísraelskra yfirvalda og komst að þeirri niðurstöðu að í þeim fælust beinar sannanir um ásetningu um þjóðarmorð.
Þá rannsakaði hún mynstur aðgerða ísraelskra yfirvalda og öryggissveita á Gasa, þar á meað að valda sulti og ómannúðlegum lífsskilyrðum fyrir Paleastínumenn. Hún komst að þeirri niðurstöðu að þessar aðgerðir yrðu ekki skýrðar með öðrum hætt en ásetningi um þjóðarmorð.
Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Isaac Herzog forseti, Benjamín Netanyahu og Yoav Gallant þáverandi varnarmálaráðherra hafi hvatt til þjóðarmorðs. Ísraelsk yfirvöld hafi látið hjá líða að grípa til aðgerða gegn þeim og beita þá refsingu.
Nefndin mælti með því að aðildarríkin hætti flutningi vopna og annars búnaðar sem nota má við að fremja þjóðarmorð til Ísraels. Tryggja beri að einstaklingar og fyrirtæki á yfirráðasvæði þeirra og innan lögsögu þeirra hvorki stuðli að né aðstoði við að fremja þjóðarmorð. Þeim beri að grípa til aðgerða til að skilgreina ábyrgð með rannsóknum og lagalegum aðgerðum gegn einstaklingum og fyrirtækjum sem hafa tekið þátt beint eða óbeint í þjóðarmorði.
Aðgerðaleysi felur í sér hlutdeild
„Alþjóðasamfélagið getur ekki látið þjóðarmorðsherferð Ísraels gegn Palestínumönnum á Gasa viðgangast átölulaust,” sagði Pillay. „Þegar hreinar og klárar vísbendingar um þjóðarmorð hafa komið í ljós felur aðgerðaleysi í sér hlutdeild. Hver aðgerðalaus dagur kostar mannslíf og grefur undan trúverðuleika alþjóðasamfélagsins. Öll ríki bera lagalega skyldu til að nota öll tiltæk ráð, sem þau búa yfir með skynsamlegum hætti til að stöðva þjóðarmorð á Gasa.”
Sjá blaðamannafund nefndarinnar í Genf 16.september 2025 hér.
Óháð Alþjóðleg rannsóknarnefnd um hersetin palestínsk svæði, þar á meðal Austur- Jerúsalem og Ísrael var sett á stofn af Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna 27.maí 2021.
