A-Ö Efnisyfirlit

Gasasvæðið: almannasamtök vilja að SÞ taki við mannúðaraðstoð á ný

Starfsmaður UNRWA í rústum á Gasa. Mynd: UNRWA
Starfsmaður UNRWA í rústum á Gasa. Mynd: UNRWA

Gasasvæðið. Mannúðaraðstoð. Rúmlega 160 almannasamtök, þar á meðal fjölmörg norræn, hvetja til tafarlausra aðgerða til að binda enda á banvæna dreifingu Ísraela á hjálpargögnum á Gasasvæðinu.

Þau krefjast þess að Sameinuðu þjóðirnar taki á ný við dreifingunni og banni Ísraels við flutningi aðstoðar og verslunarvöru verið aflétt. Frá október 2023 hafa rúmlega 56 þúsund Palestínumenn verið drepnir, þar á meðal 17 þúsund börn.

Oft er reynt að brenna rusli til að hita mat. Mynd: UNICEF/Mohammed Nateel
Oft er reynt að brenna rusli til að hita mat. Mynd: UNICEF/Mohammed Nateel

Engin íslensk samtök undirrita

Auk fjölmargra alþjóðlegra samtaka á borð við Oxfam og Barnaheill undirrita fjölmörg norræn hjálparsamtök yfirlýsinguna, en þó ekkert íslenskt.

Að sögn samtakanna standa Palestínumenn á Gasa frami fyrir ómögulegu vali: á milli þess að líða hungur eða vera skotnir við að ná í mat fyrir fjölskyldur sínar. Bent er á að mannfall hafi sjaldan verið meira en frá þeim tíma að Ísrael tók yfir dreifinguna, segir í yfirlýsingunni.

Tjöld uppflosnaðra Palestínumanna við sjávarsíðuna á Gasasvæðinum. Mynd: UN News
Tjöld uppflosnaðra Palestínumanna við sjávarsíðuna á Gasasvæðinum. Mynd: UN News

Hvorki eldsneyti né vatn

Áfram segir í yfirlýsingunni að á fjórum vikum hafi 500 Palestínumenn verið drepnir og nærri 4 þúsund særst við það eitt að reyna að fá aðgang að eða dreifa mat. Ísraelsher og vígasveitir, sem fullyrt er að njóti stuðnings ísraelskra yfirvalda, beiti iðullega skotvopnum á örvæntingarfullt fólk, sem gerir allt til að lifa af.

Samtökin hafa eftir fólki á staðnum að margar fjölskyldur séu of aðfram komnar til að bera sig eftir mataraðstoð enda ríki hungur eða jafnvel hungursneyð. Margir þeirra sem leggja á sig langa leið til að ná í mat snúa aftur nærri tómhentir. Hvort sem er, er svo mikill vatnsskortur að nærri ómögulegt er að nálgast hreint vatn eða eldsneyti til matargerðar.

Tjöld uppflosnaðra Palestínumanna við sjávarsíðuna á Gasasvæðinum. Mynd: UN News
Fólk sem leitaði skjóls í skólum UNRWA snemma í átökunum. Mynd: UNRWA

Eldnseyti er nánast á þrotum, og þar með eru bakarí, vatnsveitur, sjúkarbílar og sjúkrahús að verða óstarfhær. Fjölskyldur hírast undir plastdúkum, og reyna að koma upp eldunaraðstöðu innanum rústir án eldsneytis, hreins vatns, salerna og rafmagns.

Stuðningur við að Sameinuðu þjóðirnar taki við á ný

Samtökin sem undirrita yfirlýsinguna hvetja til að:

  • Gripið verði til raunhæfra aðgerða til að binda enda á kæfandi umsátrið. Réttur Gasabúa til öruggs aðgangs að aðstoð sé virtur og þeim tryggð vernd.
  • Fjárveitendur eru hvattir til að styrkja ekki aðstoð hers, enda brjóti slíkt í bága við alþjóðalög, virðir ekki mannúðarsjónarmið, eykur skaða og skapar hættu á samsekt í voðaverkum.
  • Samtökin styðja endurreisn sameinaðra aðgerða undir stjórn Sameinuðu þjóðanna. Þær byggi á alþjóðlegum mannúðarlögum og starfi UNRWA, Palestínuflóttamannahjálparinnar,  njóti stuðnings borgaralegs samfélags á Gasa og mannúðarsamfélagsins og sinni þörfum íbúanna.
  • „Við ítrekum brýna kröfu okkar um tafarlaust og varanlegt vopnahlé, lausn allra gísla og fólks sem fangelsað hefur verið af handahófi, óskoraðan aðgang fyrir mannúðaraðstoð í stórum stíl. Endi verði bundinn á það refsileysi sem greiðir fyrir voðaverkum og grefur undan grundvallarsæmd Paleastínumanna,” segir í yfirlýsingunni.
  • Norska flóttamannaráðið er á meðal þeirras em undirrita. Framkvæmdastjóri þess sést hér ræða við flóttamenn í norður Kamerún. Mynd: NRC/Tiril Skarstein.
    Norska flóttamannaráðið er á meðal þeirras em undirrita. Framkvæmdastjóri þess sést hér ræða við flóttamenn í norður Kamerún. Mynd: NRC/Tiril Skarstein.
  • Á meðal samtakanna sem undirrita áskorunina eru:

  • Amnesty International, Barnaheill (Save the Children), Caritas Internationalis, Hjálparstofnun bresku kirkjunnar (Christian Aid), Hjálparstofnun dönsku kirkjunnar, Danska flóttamannaráðið, Hjálparstofnun sænsku kirkjunnar, Kvinna till Kvinna, Alþjóðatengslanet heimslækna (Médecins du Monde), Læknar án landamæra (Médecins Sans Frontières), Hjálparstofnun norsku kirkjunnar, Norska alþýðuhjálpin, Norska flóttamannaráðið og Oxfam International.
  • Heildarlisti yfir samtökin má sjá r. Nánari upplýsingar um ástandið á Gasa  hér,  hér og hér.