A-Ö Efnisyfirlit

Gasasvæðið: hungursneyð afstýrt en 77% líða hungur  

Vetur herjar á Gasabúa.
Vetur herjar á Gasabúa. Mynd: IPC

Gasasvæðið.  Fæðuöryggi á Gasasvæðinu hefur batnað frá því vopnahléi var lýst yfir í október. Hungursneyð ríkir ekki en ástandið er enn mjög alvarlegt. Meir en þrír fjórðu hlutar íbúanna búa við hungur og vannæringu. Þetta er niðurstaða rannsóknar, sem naut stuðnings Sameinuðu þjóðanna. 

Í nýjustu svokallaðri IPC skýrslu ríkir hvergi hungursneyð á Gasasvæðinu þótt vart hafi verið opnað í hálfa gátt fyrir matvælaflutningum frá því vopnahlé tók gildi 10.október. Í skýrslum IPC er farið í saumana á matvælaástandi og næringu íbúa og raðað eftir ákveðnu kerfi. Hungursneyð er þannig fimmta stig á kvarða IPC (IPC Phase 5).

Kona á Gasa undirbýr morgunverð eftir kalda nótt í tjaldi. Mynd
Kona á Gasa undirbýr morgunverð eftir kalda nótt í tjaldi. Mynd: UNICEF/Mohammed Nateel

Hins vegar teljast nærri allir Gasabúa á stigi fyrir neðan hungursneyð eða á fjórða stigi á kvarða IPC (IPC Phase 4). Hundruð þúsunda þjást vegna vannæringar á háu stigi.

Rannsókn IPC náði til 1.6 milljónar manna frá miðjum október til loka nóvember. 77% þessa fólks glímdi við stórfellt hungur eða enn hærra (Phase 3). Af þeim bjó hálf milljón við neyðarástand (Phase 4) og rúmlega 100 þúsund á hamfarastigi.

Bætt ástand hættulega brothætt“

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að ástandið hafi batnað en þær framfarir sem hafi orðið séu „hættulega brothættar.”

„Hungursneyð hefur verið kveðin niður. Miklu fleira fólk hefur aðgang að matvælum í nægilegu magni til að lifa af,“ sagði Guterres á fundi með blaðamönnum í New York.

Hann benti á að meir en þrír fjórðu hlutar íbúanna „stæðu andspænis fæðuóöryggi á hátu stigi og brýnni hættu á vannæringu.”

Í IPC-skýrslunni segir að búast megi við því að frá og með miðjum apríl teljist 572 þúsund manns búa við neyðarástand. Um 1900 manns muni glíma við hungur á hamfarastigi.

Hins vegar sé hungursneyð handan við hornið ef átök blossa upp að nýju eða mannúðaraðstoð og innfllutningur matvöru dragist saman eða stöðvist.

Matardreifing í Al-Shaboura flóttamannabúðunum í Rafah í árslok 2023.
Matardreifing í Al-Shaboura flóttamannabúðunum í Rafah í árslok 2023.Mynd: WHO.

Vannæring mikið áhyggjuefni

Vannæring er sem fyrr verulegt vandamál, ekki síst á meðal barna, vanfærra kvenna og þeirra sem hafa barn á brjósti.

Búist er við að 101 þúsund börn frá 6 til 59 mánaða þjáist af alvarlegri vannæringu fram til miðs októbers á næsta ári, þar af teljist 31 þúsund alvarleg tilfelli.

Þótt matvælaaðstoð hafi aukist, segir í skýrslunni að hún nægi aðeins til að fólk skrimti. Heilbrigðis-, vatns- og hreinlætiskerfi hafa orðið fyrir gríðarlegum skakkaföllum. Fjölskyldur á Gasa eru því afar berskjaldaðar, sérstaklega að vetri til.

Sjá einnig hér: Gasasvæðið: Mannúðaraðstoð takmörkuð og alþjóðleg hjálparsamtök flæmd á brott