A-Ö Efnisyfirlit

Gasasvæðið: Mannúðaraðstoð takmörkuð og alþjóðleg hjálparsamtök flæmd á brott

Vetrarhörkur eru skammt undan á Gasa, þar sem fólk hefst við í tjöldum eða hálfhrundum húsum.
Vetrarhörkur eru skammt undan á Gasa, þar sem fólk hefst við í tjöldum eða hálfhrundum húsum. Mynd.UNRWA

Gasasvæðið. Ísraelar hafa komið í veg fyrir að mannúðaraðstoð komist til Gasabúa. Flutningar eru hindraðir við landamæri, auk skrifræðis og annara takmarkana. Þá missa fjöldi alþjóðlegra hjálparsamtaka starfsleyfi fyrir lok mánaðarins að óbreyttu.

Þessar hindranir hafa valdið mikilli mannúðarkreppur. Skortur er á mat, lyfjum, eldsneyti, og húsaskjóli.

Talið er að 92% alls húsnæðis á Gasa hafi skemmst í tveggja ára átökum. Tugir þúsunda hafast við í veikburða tjöldum og rústum bygginga, oft og tíðum án einangrunar, rúmfata eða upphitunar.

Börn á Gasa fá vetrarklæðnað frá UNICEF.
Gasasvæðið: Börn  fá vetrarklæðnað frá UNICEF. Mynd: © UNICEF/Eyad El Baba

Vetur er genginn í garð og úrhellis-rigningar hafa bulið á Gasasvæðinu. Flóð hafa orðið á tjaldsvæðum. Mörg skýli hafa orðið flóðunum að bráð og fallið saman. Vatsnflaumurinn og skolp hafa breyst í sóttkveikjur. Sjúkdómar hafa breiðst út og aukið álag á heilbrigðisþjónustu, sem mátti við litlu.

Gamalt fólk og ung börn eru sérstaklega berskjölduð. Dæmi eru um að börn hafi frosið í hel vegna ófullnægjandi húsaskjóls.

Takmarkanir Ísraela

„Börnin á Gasa fá engan frið og Byron-óveðrið og flóð því samfara hafa reynst banvæn,“ segir Philippe Lazzarini forstöðumaður UNRWA, Palestínu-flóttamannahjálparinnar.

„Óveður eru náttúruhamfarir, en afleiðingarnar eru mannanna verk þegar íbúunum er gert að lífa innan um hálfhrundar rústir í bráðabirgða-skýlum eða þunnum tjöldum.“

Þrátt fyrir vetrarkomu, takmarka Ísraelsmenn verulega flutninga miklvægs byggingarefnis í skýli til Gasa og hindra þannig að fjölskyldur fái skjól fyrir kulda og regni. Sameinuðu þjóðirnar og hjálparasmtök hafa dreift vetrarklæðnaði, ábreiðum og tjöldum, en engan veginn í nægilegu magni.

„Þúsundir starfsmanna UNRWA gera allt sem þeir geta til að dæla vatni í burtu, dreifa teppum og sinna grundvallar læknisaðstoð. En það væri hægt að gera miklu, miklu meira ef aðstoð væri leyft að berast óhindrað,” segir Lazzarini.

Kona við tjald sitt á Gasa
Gasasvæðið. Kona við tjald sitt. Mynd. © UNICEF/Mohammed Nateel

Gasasvæðið: Nýjar hindranir

Mannúðarstofnanir sem starfa á herteknum svæðum Ísraela í Palestínu hafa varað við því að lífsnauðsynlegt hjálparstarf kunni að leggjast af, ef Ísraelar aflétti ekki nýjum hindrunum á flutning aðstoðar og neyði hjálparsamtök til að hætta starfsemi.

Mannúðarteymi Sameinuðu þjóða starfsliðs og rúmlega 200 staðbundinna og alþjóðlegra hjálparamtaka hafa hvatt Ísrael í harðorðri yfirlýsingu að endurskoða aðgerðir, sem eru við að kæfa mannúðarstarf sérstaklega á Gasasvæðinu.

Hryggjarstykki þeirra er nýtt skráningarkerfi fyrir frjáls félagasamtök. Hjálparsamtök segja skráningu byggða á óljósum og pólitískum grunni og geri starf ókleift án þess að brjóta í bága við mannúðarsjónarmið.

Eins og staðan er verða tugir samtaka afskráð í árslok og mun þá starfsemi þeirra leggjast af innan fárra vikna.

„Starfsemi þessara samtaka er engin valkvæð viðbót,“ segir í yfirlýsingunni. „Ef þau eru rekin á brott mun mannnúðarstarf bíða skipbrot.“

Milljóna dollara virði af matvælum, lyfjum, hreinlætisvörum og byggingarefni í skýli sitja föst utan Gasa og koma fjölskyldum á svæðinu enn ekki að notum.

Viðvörunarorð mannúðarsamtakanna eru sögð nú þegar vetur konungur herjar af sífellt meiri hörku. Óttast er að enn frekari hindranir kunni að grafa undan veikburða vopnahléi.

Mikil skaði

Hjálparstofnanirnar segja að stofnanir Sameinuðu þjóðanna og heimamanna geti ekki komið í stað alþjóðlegu frjálsu félagasamtakanna. Nú þegar hafa Ísraelar bannað starf Palestínu-flóttamannahjálparinanr (UNRWA) og valdið með því mannúðarstarfi miklum búsifjum.

Að sögn mannúðarteymisins styðja alþjóðlegu samtökin við eða reka stórann hluta þeirra innviða Gasa, sem nauðsynlegir eru til að íbúarnir lifi af.

Þau styðja starf sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, sjá um hreint vatn og hreinlætisaðstöðu, dreifa neyðarskýlum og meðhöndla börn sem þjást af alvarlegri vannæringu. Ef þeim er gert að yfirgefa svæðið, myndi ein af hverjum þremur heilbrigðisstofnunum á Gaza loka nánast samstundis og þar með stöðva umönnun tugþúsunda sjúklinga.

Teymið varaði við því að án skjótra aðgerða yrðu afleiðingarnar fyrir óbreytta borgara á Gaza skelfilegar.