Gasasvæðið orðið að blóðvelli, segir Guterres

Gasasvæðið. Mannúðaraðstoð.Gíslar.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur krafist þess að leyft verði að flytja mannúðaraðstoð óhindrað til Gasasvæðisins, öllum gíslum verði sleppt skilyrðislaust og vopnahlé komið á að nýju.

Guterres sagði á blaðamannafundi að nú hefði rúmur mánuður liðið án þess að nokkurri aðstoð hefði verið hleypt inn til Gasa.

„Enginn matur. Ekkert eldsneyti. Engin lyf. Engar vörur. Og um leið og aðstoðin hefur horfið hafa flóðgáttir hryllings opnast að nýju. Gasasvæðið er orðið blóðvöllur -og óbreyttir borgarar eru fastir í klóm dauðans,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.

„Heimsbyggðin á ekki lengur orð til að lýsa ástandinu á Gasa, en við munum aldrei hlaupast á brott frá því að segja sannleikann.“

Guterres hitti í gær fjölskyldur fólks, sem hneppt var í gíslingu 7.október 2023.  Hann kallaði árásina „grimmilega“ og krafðist þess að allir gíslar yrðu látnir lausir skilyrðislaust.

Guterres talar við blaðamenn í New York 8,.apríl.
Guterres talar við blaðamenn í New York 8,.apríl. Mynd: UN Photo

Skyldur Ísraels  

Forstöðumenn mannúðarsamtaka Sameinuðu þjóðanna vísuðu á bug í gær fullyrðingum um að nóg væri af matvælum á Gasa og sögðu að jafnt matur, sem  aðrar vörum væru á þrotum.

Guterres sagði að Ísrael hefði skyldur samkvæmt alþjóðalögum sem hernámsríki. Þar á meðal bæri Ísrael skylda til að tryggja að Gasabúar fengju mat og hjúkrunargögn.

„Engri mannúðaraðstoð er hleypt í gegn til Gasa. Á sama tíma hrúgast upp við landamærin matarbirgðir, lyf, skýli og tækjabúnaður.”

Matur er af skornum skammti á Gasa eftir mánaðarlanga herkví ísraela.
Matur er af skornum skammti á Gasa eftir mánaðarlanga herkví ísraela. Mynd: UNRWA

Guterres sagði að Sameinuðu þjóðirnar myndu ekki taka þátt í nýju ferli sem Ísrael hefði tekið upp, sem hann sagði að myndu „minnka aðstoð niður í ekki neitt, niður í síðustu kalóríu og síðustu hveitflögu.“

Óháð rannsókn

 Aðalframkvæmdastjórinn benti enn á að samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum bæri Ísrael skylda að virða mannúðarstarfsmenn við skyldustörf.

„Ég vil sérstaklega nefna mannúðarhetjurnar á Gasa. Þeir lenda í kúlnahríð en halda áfram að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að sinna starfinu sem þeir hafa valið: að hjálpa fólki.“

„Ég hvet enn á ný til þess að óháð rannsókn fari fram á drápum mannúðarstarfsmanna, þar á meðal starfsmanna Sameinuðu þjóðanna,“ bætti Guterres við.

 

Fréttir