Gasasvæðið. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun sem Bandaríkin lögðu fram um stofnun alþjóðlegrar sveitar á Gasasvæðinu. Henni er ætlað að endurreisa lög og reglu á Gasa og vernda óbreytta borgara. Þá ber henni að greiða fyrir umfangsmikilli mannúðaraðstoð og endurreisn svæðisins.
Mike Waltz fastafulltrúi Bandaríkjanna þakkaði starfsbræðrum sínum og sagð að þessi „sögulega og uppbyggilega” ályktun myndi greiða leið fyrir nýjum tímum í MIð-Austurlöndum.
Ályktunin byggir á 20 liða friðaráætlun Bandaríkjanna um að tryggja öryggi, aðgang mannúðaraðstoðar og hefja enduruppbyggingu og umbætur í stofnunum Gasa eftir tveggja ára ófrið.
Þrettán greiddu tillögunni atkvæði. Kína og Rússland sátu hjá. Þau létu hins vegar hjá líða að beita neitunarvaldi og því var tillagan samþykkt. Fulltrúi Kína gagnrýndi hve lítill gaumur væri gefinn að Palestínu í ályktuninni. Ekki væri kveðið nægilega skýrt og skorinort á um fullveldi Palestínu og tveggja ríkja lausn. Þá gagnrýndi hann að Sameinuðu þjóðunum væri ekki ætlað neitt umtalsvert hlutverk.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna: Hvað felst í ályktuninni?
Álkytunin felur í sér stonfun svokallaðrar Alþjóðlegrar stöðugleikasveitar (ISF) sem myndi starfa með Ísrael og Egyptalandi í tvö ár til að byrja með.
Hún á að bera ábyrgð á landamærum Gasa, vernd óbreyttra borgara, greiða fyrir mannúðaraðstoð, og styðja þjálfun og stofnun palesínskrar lögreglu. Sveitin á að afvopna Hamas og aðrar vígasveitir.
Á ályktuninni segir einni að ísraelskar sveitir verði dregnar tila baka þegar sveitin hefur hafið störf og tryggt öryggi og yfirráða á öllu svæðinu.
Komið verður upp stjórnunarferli og mun Donald Trump Bandaríkjaforseti veita sérstöku friðarráði forystu. Því er ætlað að samræma öryggismál, mannúðaraðstoð og enduruppbyggingu.
Greiða á leið fyrir umbótum á palestínskum stjórnvöldum sem eiga að taka við stjórn Gasa. Í ályktuninni felst vegvísir sem ber að tryggja sjálfsákvörðunarrétt Palestínumanna og að lokum ríkisstofnun.
