A-Ö Efnisyfirlit

 Sameinuðu þjóðirnar hvetja Ísrael og Hamas til að framylgja friðaráætun að fullu

Gasasvæðið: friðaráætlun samþykkt.
Gasasvæðið: friðaráætlun samþykkt. Mynd: © UNICEF/Mohammed Nateel

Gasasvæðið. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur fagnað tilkynningu Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að Ísrael og Hamas hafi samþykkt fyrsta hluta 20 liða friðaráætlun hans eftir samningalotu í Egyptalandi.

Trump forseti tilkynnti um samkomulagið á samfélagsmiðlum seint í gærkvöldi. Samkvæmt tilkynningunni hefði Hamas samþykkti að láta alla gísla á Gasa lausa „mjög fljótlega”. Ísraelar hefðu samþykkt að flytja landher sitt að fyrirfram ákveðinni línu samkvæmt samkomulagi.

„Ég fagna samkomulaginu um að tryggja vopnahlé og lausn gísla á Gasa, sem byggir á tillögum Donalds J. Trump forseta,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri í yfirlýsingu.

Hrósar samningamönnum

„Ég ber lof á diplómatískt starf Bandaríkjanna, Katar, Egyptalands og Tyrklands sem hafa náð þessu samkomulagi, sem var sárlega þörf.”

Aðalframkvæmdastjórinn hvatti „alla hlutaðeigandi til að fylgja samkomulaginu að fullu og öllu,” þar á meðal um lausn allra gísla „með fullri reisn“, sem hafa verið í haldi í rúm 2 ár.

Guterres lagði áherslu á að vopnahléið yrði að vera varanlegt. Sameinuðu þjóðunum er falið að sjá um flutning og dreifingu mannúðaraðstoðar ásamt Rauða hálfmánanum samkvæmt áætlun Bandaríkjanna.

„Bardögum verður að ljúka þegar í stað og að fullu,“ sagði Guterres. „Tryggja ber tafarlusa og óhindraða flutninga mannúðaraðstoðar og þýðingarmikilla vara til Gasa. Þjáningum verður að ljúka.“