Allsherjarþing. Gervigreind. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar við því að „tímabil mikillar óvissu“ sé framundan í heiminum. Hann hvatti ríkisstjórnir til að beita alþjóðlegu samstarf itil að takast á við alþjóðlegar ógnir.
Sex dögum áður en leiðtogar heimsins koma saman í New York á 81.allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna ræddi Guterres við fréttamenn og benti á „þrjár tilvistarógnir“: stjórnlausa gervigreind (AI), loftslagsvána og vaxandi ójöfnuð. Hann ítrekaði einnig kröfur um tveggja ríkja lausn í Mið-Austurlöndum og vopnahlé milli Rússlands og Úkraínu.
Þótt hann viðurkenndi þörfina á umbótum á alþjóðlegum stofnunum, þar á meðal Sameinuðu þjóðunum sjálfum, lagði aðalframkvæmdastjórinn áherslu á að fyrirheit Sameinuðu þjóðanna um að viðhalda friði og vernda mannréttindi væru óbreytt.
„Að uppfæra skipulag okkar getur aldrei þýtt að við gefum upp grundvallarreglur okkar – það verður að þýða að við beitum þessum reglum með enn meiri einurð,“ sagði Guterres.
Þörf fyrir frið
Nú meira en nokkru sinni fyrr hvatti Guterres aðildarríkin til að halda sáttmála Sameinuðu þjóðanna í heiðri, verja alþjóðalög, vernda mannréttindi, fjárfesta í sjálfbærri þróun og þrýsta á um frið alls staðar. Hann benti á eyðilegginguna á Gasa og stríðið milli Rússlands og Úkraínu sem sérstök áhyggjuefni og hvatti leiðtoga til að vinna að „því að draga spennu, nota diplómatískar aðferðir og koma á viðræðum“ til að binda enda á þessi átök.
„Á þessari mikilvægu stundu í Mið-Austurlöndum verður að vera forgangsatriði númer eitt, tvö og þrjú að draga úr spennu,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.

Stríðandi fylkingar í Mið-Austurlöndum verða að virða siglingarétt í Hormússundi og Bab al-Mandab-sundi og mega ekki skaða almenna borgara, sagði Guterres. Hann vakti einnig athygli á þjáningum palestínsku þjóðarinnar á Gasa og sagði að innlimun Ísraels á Vesturbakkanum „verði að stöðva.“
Meira en fjórum árum eftir allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu sagði Guterres að „enginn endir sé í sjónmáli“ og kallaði eftir tafarlausu vopnahléi sem fyrsta skrefi í átt að „réttlátum, varanlegum og heildstæðum friði.“
Allsherjarþingið mun að öllum líkindum ræða bæði átökin í næstu viku.
Takmarkanir á þróun gervigreindar
Aðalframkvæmdastjórinn helgaði næstum helming ræðu sinnar því sem gera ætti í sambandi við hraða framþróun gervigreindartækni.
„Heimurinn hefur ekki efni á skefjalausu kapphlaupi varðandi öryggi gervigreindar,“ sagði hann.
Guterres benti á óháða alþjóðlega vísindanefnd um gervigreind, sem stofnuð var af Sameinuðu þjóðunum, og sagði að hún yrði ráðgefandi í alþjóðlegum umræðum með því að leggja fram bestu fáanlegu sönnunargögn um tækifæri og áhættur gervigreindar.
„Alþjóðlegt samstarf er nauðsynlegra en nokkru sinni fyrr,“ sagði hann.
