A-Ö Efnisyfirlit

Getur gervigreind hjálpað loftslaginu án þess að gera illt verra?

Gervigreind. Mynd: Luke Jones/Unsplash
Gervigreind. Mynd: Luke Jones/Unsplash

 Gervigreind. Loftslag. Gervigreindarlíkön svara um 90% spurninga um loftslagsvísindi rétt, samkvæmt nýrri skýrslu UNESCO sem kynnt var í tengslum við COP31. Hins vegar víkja þau stundum  frá viðurkenndum vísindalegum staðreyndum ef efasemdarmenn um loftslagsbreytingar véfengja þau. 

Niðurstöður UNESCO og University College London (UCL) vara stefnumótendur við því að reiða sig á gervigreindarlíkön við mótun loftslagsstefnu og benda á veikleika í rökhugsun um stefnumál og nákvæmni á mörgum tungumálum.

Gervigreindarlíkön víkja stundum  frá viðurkenndum vísindalegum staðreyndum þegar efasemdarmenn um loftslagsbreytingar véfengja þær. 
Gervigreindarlíkön víkja stundum  frá viðurkenndum vísindalegum staðreyndum þegar efasemdarmenn um loftslagsbreytingar véfengja þær. 
Mynd: UN News.

Nýtt verkefni reynir að taka á þessum vanda með gervigreindinni sjálfri.

Brigitte Perrin, stofnandi Earth Info Hub vinnur að þróun Beluga, gervigreindarvettvangs sem ætlað er að safna saman áreiðanlegum vísindalegum upplýsingum.

„Öll þau vísindi sem stofnanir SÞ og vísindastofnanir skapa, dag eftir dag, hafa tilhneigingu til að dreifast og sundrast á marga vettvanga og vefsíður,“ útskýrði hún.

Markmiðið, sagði hún, er að skapa „miðlægan og öruggan stað“ þar sem stefnumótendur, blaðamenn og almenningur geta fundið áreiðanlegar umhverfisrannsóknir.

Frjálsu félagasamtökin Earth Info Hub vinna að þróun Beluga, gervigreindarvettvangs sem ætlað er að safna saman áreiðanlegum vísindalegum upplýsingum. © Briggite Perrin
Frjálsu félagasamtökin Earth Info Hub vinna að þróun Beluga, gervigreindarvettvangs sem ætlað er að safna saman áreiðanlegum vísindalegum upplýsingum. © Briggite Perrin

Gervigreind getur komið að gagni

Gervigreind getur hjálpað til við að spá fyrir um öfgaveður, bera kennsl á berskjölduð samfélög og bæta orkunýtni. En sífellt öflugri líkön krefjast einnig gríðarlegs magns af rafmagni og vatni.

Á ráðherrafundi hleyptu Tyrkland og Alþjóðafjarskiptasamband Sameinuðu þjóðanna  (ITU) af stokkunum Antalya-heitinu um gervigreind, sem hefur hlotið 80 stuðningsyfirlýsingar og 271 skuldbindingu.

Gagnaver.
Gagnaver. Mynd: Winston Chen- unsplash

Þetta valfrjálsa framtak miðar að því að draga úr umhverfisfótspori gervigreindar með hreinni orku, skilvirkari innviðum, betri vöktun losunar og víðtækari aðgangi að tækni, einkum í þróunarlöndum.

Tomas Lamanauskas, aðstoðarframkvæmdastjóri ITU, varaði við því að gert sé ráð fyrir að orkunotkun gagnavera sem knýja gervigreind tvöfaldist fyrir árið 2030, á sama tíma og losun sumra tæknifyrirtækja hefur þegar aukist um 50 prósent á undanförnum árum.

„Þetta er að verða áskorun sem við þurfum að hafa hemil á ef við viljum […] tryggja að gervigreind sé lausn en ekki vandamálið,“ sagði hann.

Hann lagði áherslu á að hin raunverulega prófraun Antalya-heitisins væri framkvæmd þess, og að ITU hefði skuldbundið sig til að fylgjast með framvindu og draga þátttakendur til ábyrgðar.

COP31 stendur yfir í Antalya í Tyrklandi.
COP31 stendur yfir í Antalya í Tyrklandi. Mynd: © UN Climate Change/Kubilay Citfci

Frá loftslagsáhættu til hagnýtra lausna

Að mati Álvaro Rojas hjá Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Bonn hjálpar gervigreind stjórnvöldum nú þegar að taka betri ákvarðanir. Teymi hans notaði hana til að greina 1.600 skjöl um áhættustjórnun vegna hamfara og bera kennsl á hvar lönd þurfa stuðning vegna loftslagstengds tjóns og skaða og hvar sérþekking er þegar til staðar.

„Tæknin er verkfæri,“ sagði hann við UN News. „Verkfærið sjálft kemur aðeins að gagni svo lengi sem fólk skilur hvað býr að baki því.“

Sjá einnig hér.