A-Ö Efnisyfirlit

Guterres: Við megum aldrei gefast upp

„Við erum komin inn í tíma glæfralegrar upplausnar og óendanlegrar mannlegrar þjáningar,“ sagði António Guterres.
„Við erum komin inn í tíma glæfralegrar upplausnar og óendanlegrar mannlegrar þjáningar,“ sagði António Guterres. Mynd: UN Photo

80. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna fylgdi umræðum þjóðarleiðtoga á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna úr hlaði með alvarlegri aðvörun. Hann sagði að hamfarir af ólíkum toga riðu yfir heiminn samtímis. Styrjaldir, mannúðarhamfarir og loftslagsvá sköruðust sem aldrei fyrr. Leiðtogar ríkja yrðu nú að gera upp við sig „hvers konar heim við viljum byggja uupp í sameiningu.”

Oddvitar ríkja og ríkisstjórna heimsins koma saman í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York í september á hverju ári til að kynna stefnu sína í heimsmálum. Opnunarræða aðalframkvæmdastjórans þar sem hann kynnir ársskýrslu samtakanna slær tóninn fyrir umræðuna.

Annalena Baerbock forseti 80.allsherjarþingsins opnaði umræðuna
Annalena Baerbock forseti 80.allsherjarþingsins opnaði umræðuna. Mynd: UN Photo/Loey Felipe.

Sameinuðu þjóðirnar eru áttræðar í ár og António Guterres rifjaði upp að þjóðir heims hefðu fylkt liði eftir Síðari heimsstyrjöldina og stofnað alheimssamtök til að finna praktískar leiðir til að tryggja áframhaldandi líf mannkyns.

„Áttatíu árum síðar leitum við svara við sömu spurningum og stofnendurnir. Sá er þó munurinn að vandamálin eru enn brýnni, enn samtvinnaðri, enn ósáttfúsari.“

Heimur í herkví

Oddviti Sameinuðu þjóðanna lýsti því hvernig ofbeldi, hungur og loftslagshamfarir herjuðu á veröldina.

„Við erum komin inn í tíma glæfralegrar upplausnar og óendanlegrar mannlegrar þjáningar,“ sagði hann og varaði við því að „stoðir friðar og framfara væru að bresta undan þunga refsileysis, ójöfnuðar og sinnuleysis.“

António Guterres átti fund með Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna.
António Guterres átti fund með Donald J. Trump forseta Bandaríkjanna.

Sameinuðu þjóðirnar skipta máli

Andspænis slíku ástandi sagði Guterres að Sameinuðu þjóðirnar væru sem fyrr ómissandi.

„Þegar best lætur eru Sameinuðu þjóðirnar meira en fundarstaður, heldur einnig siðferðilegur áttaviti, friðarafl, sem stendur vörð um alþjóðalög og varpar líflínu til bágstaddra.”

Hann benti á að þótt fjölpóla veröld byggi yfir sköpunarkrafti, þá væri án alþjóðlegrar samvinnu mikil hætta á óstöðugleika.

„Fjölpóla heimur án skilvirkra fjölþjóða-stofnana elur af sér stjórnleysi eins og Evrópu mátti þola í fyrri heimsstyrjöldinni,” sagði hann.

Alþjóðleg samvinna væri ekki barnsleg trú, heldur nauðsyn.

„Ekkert ríki getur stöðvað heimsfaraldur upp á eigin spýtur. Enginn her getur stöðvað hækkandi hitastig. Enginn algóryþþmi getur byggt upp traust að nýju þegar það hefur verið rofið.”

Ræða aðalframkvæmdastjóra slær oft tóninn fyrir framhald umræðunnar.
Ræða aðalframkvæmdastjóra slær oft tóninn fyrir framhald umræðunnar. UN Photo.

„Það er kalt mat að alþjóðasamvinna er pragmatísk lausn” sagði Guterres, „andspænis sameiginlegum alheims-ógnum.

Á hættutímum hafa Sameinuðu þjóðirnar aldrei verið mikilvægari, að sögn aðalframkvæmdastjórans.

„Heimurinn þarfnast einstæðs lögmætis okkar. Áhrifa okkar til að fylkja lið. Sýnar okkar til að sameina þjóðir, brúa bili og takast á við áskoranirnar sem framundan eru.”

Gutuerres flytur opnunarræðu umræðu þjóðarleiðtoga á 80.allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Gutuerres flytur opnunarræðu umræðu þjóðarleiðtoga á 80.allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Fimm brýnir kostir

Aðalframkvæmdastjórinn sagði að ríkisstjórnir stæðu frammi fyrir fimm þýðingarmiklum kostum.”

Friður fremur en stríð: Átökin frá Súdan til Úkraínu og Gasa sýna hvað það kostar að virða alþjóðalög að vettugi. „Stofnskráin er ekki valkvæð. Hún er grundvöllur okkar,” sagði hann og hvatti til vopnahléa, reikningsskila og diplómatískra lausna.”

Virðing og réttindi: Mannréttindi eru „hornsteinn friðar,” hélt hann áfram. Verndun borgaralegs frelsis verður að vera samfara fjármögnun þrounar með það fyrir augum að ríki geti fjárfesti í heilbrigði, menntun og tækifærum.

Loftslagsréttlæti: „Jarðefnaeldsneyti er að tapa veðmálinu,” sagði hann og hvatti til hraðari fjárfestina í endurnýjanlegri orku, öflugri landsáætlunum í loftslagsmálum og auknum fjárveitingum til veikburða ríkja. „Vísindin segja okkur að enn sé hægt að takmarka hlýnun jarðar við 1.5 gráðu…en glugginn er að lokast.”

Tækni í þágu mannkyns: Gervigreind og annari álíka tækni ber að stýra á ábyrgan hátt. „Vélar ættu aldrei að ákveða hver lifir og hver deyr,” sagði aðalframkvæmdastjórinn og hvatti til að samþykktir yrðu alheimsstaðlar til að tryggja að tæknin verði í þágu fólksins.

Öflugari Sameinaðar þjóðir:  Guterres sagði að eftir því sem kreppur margfölduðustu yrðu Sameinuðu þjóðirnar að aðlga sig og aðildarríki að fjármagna þær sómasamlega. Hann gagnrýndi þann halla sem felst í því að fyrir hvern dollar sem rynni til friðaruppbyggingar, eyddi heimurinn 750 dölum í stríð.”

Eins og svo oft áður vakti ræða Bandaríkjaforseta Donalds Trump einna mesta athygli á fyrsta degi umræðunnar. Mynd: UN Photo.
Eins og svo oft áður vakti ræða Bandaríkjaforseta Donalds Trump einna mesta athygli á fyrsta degi umræðunnar. Mynd: UN Photo/Laura Jarriel.

„Við megum aldrei gefast upp”

Guterres lauk ræðu sinni á persónulegum nótum. Hann rifjaði upp að hann hefði alist upp í myrkviðum einræðisstjórnar, þar sem fólk þagði óttaslegið og vonarneisti hefði nánast slokknað.

Sú reynsla að hafa alist upp á stjórnarárum einræðis í Portúgla hefði kennt honum að „raunverulegt afl býr með fólkinu og á uppruna í sameiginlegum vilja til að viðhalda reisn.”

Boðskapur hans væri einfaldur: leiðtogar mættu ekki gefast upp fyrir angist.

„Í veröld þar sem margra kosta er völ, er einn kostur sem aldrei má velja. Það er að gefast upp. Við megum aldrei gefast upp,” sagði hann. „Því lofa ég ykkur.”