A-Ö Efnisyfirlit

Guterres: árásir á mannréttindi „oft leiddar af þeim sem hafa mestu völdin“

Guterres ávarpar Mannréttindaráðið.
Guterres ávarpar Mannréttindaráðið. Mynd: OHCHR

Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna. Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að mannréttindi í heiminum sættu nú „allsherjarárás“í opnunarræðu sinni á 61. þingi Mannréttindaráðs samtakanna.

„Mannréttindi sæta allsherjarárás um allan heim,“ sagði Guterres. „Réttarríkið er að láta í minni pokann fyrir valdi aflsins. Og þessi árás ekki úr launsátri. Eða kemur á óvart. Hún á sér stað í fullri dagsbirtu – og er oft leidd af þeim sem hafa mestu völdin.“

Fundur mannréttindaráðsins.
Fundur mannréttindaráðsins. Mynd. OHCHR

Allt undir

Hann sagði að mikið væri í húfi þar sem „þegar mannréttindi falla, hrynur allt annað. Friður. Þróun. Félagsleg samheldni. Traust. Samstaða.“

Guterres sagðist ætla að ávarpa Öryggisráðið á morgun á fjórða ársdegi allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. „Það er löngu kominn tími til að binda enda á blóðsúthellingarnar.“

Hann varaði einnig við þróuninni í Mið-Austurlöndum: „Tvíríkjalausnina er verið að afnema í fullri dagsbirtu. Alþjóðasamfélagið getur ekki látið þetta gerast.“

Aðalframkvæmdastjórinn dró upp dökka mynd af ástandi heimsins „þar sem alþjóðalög eru meðhöndluð sem lítilsháttar óþægindi. Átökum fjölgar og refsileysi er orðið að smitsjúkdómi. Það er ekki vegna skorts á þekkingu, verkfærum eða stofnunum. Það er afleiðing pólitískra ákvarðana.“

Hvatt til aðgerða

Guterres kallaði eftir aðgerðum á þremur brýnum vígstöðvum.

Í fyrsta lagi sagði hann að verja þyrfti „sameiginlegan grundvöll okkar“ eins og sáttmála Sameinuðu þjóðanna, mannréttindayfirlýsinguna og gerninga alþjóðlegra mannréttindalaga „án málamiðlana.“ „Leiðtogar geta ekki valið þá hluta sem þeim líkar og hunsað restina.“

Í öðru lagi þyrfti að styrkja stofnanir. „Við þurfum Öryggisráð sem endurspeglar heiminn í dag – ekki heiminn árið 1945.“

Í þriðja lagi sagði hann að leysa þyrfti úr læðingi mátt mannréttinda.

„Mannréttindi eru ekki slagorð fyrir góðæristíma. Þau eru skylda á öllum tímum. Og því verðum við að standa vörð um þau – jafnvel þegar það er erfitt, óþægilegt eða kostnaðarsamt. Sérstaklega þá.“

Sjá nánar um Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna hér og hér.