Guterres: forðast ber þjóðernishreinsanir á Gasa

Gasasvæðið. Donald Trump.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti alþjóðasamfélagið til að forðast „þjóðernishreinsanir“ á Gasasvæðinu í ræðu í New York. Ávarpið var flutt eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti lagði til að Bandaríkin „tækju yfir” Gasasvæðisins og hvatti til að palestínskir íbúar hyrfu á brott.

Guterres lét þessi orð falla í ávarpi á fundi Nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi palestínsku þjóðarinnar.

„Í leit að lausnum megum við ekki auka á vandann,“ sagði Guterres. „Það skiptir sköpum að við höldum okkur innan ramma alþjóðalaga. Það er þýðingarmikið að forðast hvers kyns þjóðernishreinsanir.“

Áður höfðu blaðamenn spurt Stéphane Dujarric talsmann Sameinuðu þjóðanna um hvort hugmyndir forsetans fælu í sér þjóðernishreinsanir. „Hvers kyns tilflutningur fólks með valdi, felur í sér þjóðernishreinsanir,“ sagði hann.

Fjölskylda á Gasa. Mynd: UN
Fjölskylda á Gasa. Mynd: UN

Réttindi í veði

Í ræðu á fundi nefndarinnar um ófrávíkjanleg réttindi palestínsku þjóðarinnar sagði aðalframkvæmdastjórinn að „í eðli sínu snúast þessi réttindi um að Palestínumenn hafi rétt til þess að búa einfaldleg sem manneskjur í eigin landi.“

Hann sagði að því miður „höfum við horft upp á að Palestínumenn eru sífellt fjarri því að njóta þessara réttindi,“ og að heil þjóð hefði á skuggalegan hátt verið afmennskuð og skrímslavædd.“

Guterres lagði áherslu á að „að sjálfsögðu réttlætti ekkert hryllilegar árásir Hamas 7.október“ og „það sem við höfum séð gerast á Gasa síðustu mánuði.“ Hann ítrekaði hvatningu um að koma á varanlegu vopnahléi og lausn allra gísla á Gasa.

Sjá einnig hér.

Fréttir