Bandaríkin. Íran. Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Antonio Guterres fagnar tilkynningu um tveggja vikna vopnahlé Bandaríkjanna og Írans, sagði talsmaður hans Stephane Dujarric í dag. Guterres skorar á alla aðila í núverandi átökum í Miðausturlöndum að uppfylla skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum og virða skilmála vopnahlésins til að ryðja brautina fyrir varanlegum og víðtækum friði á svæðinu.
Aðalframkvæmdastjórinn leggur áherslu á að brýn þörf sé á að binda enda á stríðsátök til að vernda líf almennra borgara og lina mannlegar þjáningar. Hann lýsir einlægu þakklæti fyrir viðleitni Pakistans og annarra landa sem komu að því að greiða fyrir vopnahléinu. Persónulegur erindreki aðalframkvæmdastjórans, Jean Arnault, er á svæðinu til að styðja viðleitni í þágu varanlegs friðar.
Jorge Moreira da Silva, aðstoðaraðalframkvæmdastjóri SÞ og framkvæmdastjóri UNOPS, tekur undir með aðalframkvæmdastjóra SÞ og fagnar tilkynningunni um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans. „Þetta mun veita fólki kærkomna hvíld – síðustu sex vikur hafa valdið eyðileggingu og sorg þar sem þúsundir hafa fallið og særst“. Stríðið olli alvarlegum skemmdum á borgaralegum innviðum, þar á meðal brúm, vegum, skólum og sjúkrastofnunum. Áhrifin eru víðtæk þar sem milljónir manna utan svæðisins hafa glímt við hækkandi verð á nauðsynjavörum og skort á aðgangi að mat, eldsneyti og lyfjum, segir da Silva í yfirlýsingu.
Mikilvægt að binda enda á þjáningar Líbana
Á X segir mannréttindafulltrúinn Volker Türk: „Ég vona innilega að tilkynningin um vopnahlé Bandaríkjanna og Írans muni veita öllum þeim almennu borgurum létti sem hafa þjáðst í margar vikur og eru enn í mikilli hættu. Ég hvet alla aðila til að sýna góðan hug og tryggja að þetta fyrsta skref leiði til víðtæks samkomulags. Það er einnig mikilvægt að binda enda á þann sársauka og þjáningar sem stríðið í Líbanon hefur valdið. Varanlegur friður á svæðinu, sem verndar mannréttindi og virðir alþjóðalög, er nauðsynlegur“.
Áður höfðu bæði Guterres og Türk gagnrýnt hótanir Bandaríkjaforseta um að gereyða borgaralegum innviðum í Íran áður en vopnahléssamkomulag náðist. Trump, forseti Bandaríkjanna, hafði hótað að eyðileggja heila siðmenningu og beina spjótum sínum að borgaralegum innviðum.
