A-Ö Efnisyfirlit

Hótun Trumps sögð „viðbjóðsleg“

Barnaleikfang innanum rustir eftir loftárás á Beirutí
Barnaleikfang innanum rustir eftir loftárás á Beirutí. Mynd: UNHCR.

Háttsettir embættismenn Sameinuðu þjóðanna gagnrýndu í gær hótanir um að gereyða borgaralegum innviðum í Íran áður en vopnahléssamkomulag náðist í deilum Bandaríkjanna og Írans. Trump, forseti Bandaríkjanna, hafði hótað að eyðileggja heila siðmenningu og beina spjótum sínum að borgaralegum innviðum.

„Það er ekkert hernaðarlegt markmið sem réttlætir allsherjar eyðileggingu á innviðum samfélags eða að valda almennum borgurum þjáningum af ásettu ráði,“ skrifaði António Guterres, aðalframkvæmdastjóri SÞ, í færslu á X.

Talsmaðurinn Jeremy Laurence sagði að Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, harmaði „stríðsæsinga-orðræðu“ sem notuð væri í stríðinu í Miðausturlöndum. Hann kallaði hótun Trumps forseta um að gereyða íranskri siðmenningu „viðbjóðslega“.

Neitunarvald í öryggisráðinu

Fyrr höfðu Rússland og Kína beitt neitunarvaldi gegn ályktun sem studd var af Persaflóaríkjum í öryggisráðinu um að opna Hormússund. „Hormússund er of mikilvægt fyrir heiminn til að vera notað sem gísl, til að vera kyrkt, til að vera notað sem vopn af einhverju einu ríki,“ sagði

Michael Waltz, sendiherra Bandaríkjanna.
Michael Waltz, sendiherra Bandaríkjanna. Mynd: UNTV

Íran var andvígt drögum að ályktuninni.

„Markmið þessara draga er augljóst,“ sagði Amir Saeid Iravani, sendiherra Írans. Þau miða að því „að refsa fórnarlambinu fyrir að verja fullveldi sitt og brýna þjóðarhagsmuni í Persaflóa og Hormússundi, um leið og þau veita pólitíska og lagalega vernd fyrir frekari ólöglegar aðgerðir árásaraðila,“ sagði hann.

Mannúðarþörf eykst

Mannúðarþörf verður sífellt brýnni í Íran þar sem áframhaldandi árásir, skemmdir á innviðum og flóð valda auknu mannfalli, fólksflótta og brýnni þörf á mörgum sviðum.

Heilbrigðisþjónusta í Líbanon verður áfram fyrir árásum á meðan bardagar halda áfram, með skelfilegum afleiðingum, að því er mannúðarfulltrúar Sameinuðu þjóðanna greina frá.

Frá 2. mars hefur Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) skráð 100 árásir á heilbrigðisstofnanir, sem hafa leitt til 54 dauðsfalla og 145 meiðsla meðal heilbrigðisstarfsfólks.