Guterres hittir forsætisráðherra

0
401
António Guterres og Katrin Jakobsdóttir.
António Guterres og Katrin Jakobsdóttir. UN Photo/Ariana Lindquist

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra áttu í dag fund í New York.

Þau ræddu alþjóðlegar afleiðingar stríðsins í Úkraínu. Jafnframt skiptust þau á skoðunum um loftslagsvána, auk þeirra áskorana sem milliríkjasamstarf glímir við, segir í tilkynningu frá talsmanni aðalframkvæmdastjórans.

Forsætisráðherra er í New York vegna Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna.