António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna stýrði tveggja daga fundi allra yfirmanna Sameinuðu þjóða-fjölskyldunnar í Kaupmannahöfn 7.-8.maí.
Að auki átti hann fund með Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur. Þá sat hann kvöldverðarboð Friðriks Danakonungs og Mary drottningar til heiðurs embættismönnum Sameinuðu þjóðanna í Krónborgarkastala.
Í ræðu sinni þakkaði aðalframkvæmdastjórinn konungshjónunum fyrir að velja kvöldverðinum „stórkostlegan og táknrænan stað.”
„Hinn magnaði Krónborgarkastali var ekki aðeins Shakespeare innblástur þegar hann samdi Hamlet“, sagði Guterres. „En um allan heim endurómar innihaldið. Hættan sem stafar af hömlulausu valdi og afleiðingum sundrungar. En ólíkt því sem gerist í harmleiknum í hugarflugi Shakespeares, hefur Danmörk kosið sameiningu og reglufasta forystu. Þið hafið sýnt okkur fram á að sannur kraftur felst ekki í einsemd heldur samstöðu.“
Yfirmannafundur annað hvort ár
Aðalframkvæmdastjórinn skiptist á skoðunum við starfsfólk Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn á allsherjarfundi í UN City.
Fundur yfirmanna stofnana Sameinuðu þjóðanna er haldinn annað hvort ár. Þar voru brotin til bergjar heimsmál, sem snerta Sameinuðu þjóðirnar.
