Guterres segir Evrópusambandið „grunnstoð”  í milliríkjasamskiptum

Evrópusambandið. Sameinuðu þjóðirnar.

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sat í dag upphaf leiðtogafundar Evrópusambandsríkjanna tuttugu og sjö í Brussel.

Á blaðamannafundi með António Costa, forseta ráðherraráðs Evrópusambandsins lagði Guterres áherslu á hinn mikla stuðning ESB við starf Sameinuðu þjóðanna.

„Evrópusambandið er grunnstoð í milliríkjaviðbrögðum við þeim áskorunum, sem við glímum við á sviði friðar og öryggis, loftlagsins, sjálfbærarr þróunar og mannréttinda,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.

Guterres og Costa ræða við fréttamenn
Guterres og Costa ræða við fréttamenn. Mynd: Marian Blondeel/UNRIC.

Ástandið í Mið-Austurlöndum, Úkraínu, loftslagsmál og Sáttmálinn um framtíðina voru efst á baugi í viðræðum aðalframkvæmdastjórans í Brussel 19.-20.mars.

Guterres sagði að fagna bæri „hvers kyns vopnahléi í Úkraínu ef slíkt bjargaði mannslífum. Hins vegar bæri slíku að greiða leiðina fyrir „réttlátum friði” í samræmi við Stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna, alþjóðalög og ályktanir Öryggisráðsins, og þá sérstaklega að landamæri Úkraínu skyldu virt.

António Guterres ásamt Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB, António Costa forseta ráðherraráðsins og Kaja Kallas utanríkismálastjóra.
António Guterres ásamt Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar ESB, António Costa forseta ráðherraráðsins og Kaja Kallas utanríkismálastjóra. Mynd: Marian Blondeel/UNRIC

Palestínskt ríki rísi við hlið Ísraels

Aðalframkvæmdastjórinn sagðist einnig harmi sleginn yfir að átök hafi blossað upp að nýju á Gasasvæðinu.

„Ég er dapur og felmtri sleginn því dauði og eyðilegging hafa snúið aftur á Gasa og palestínska þjóðin hefur nú þegar þjáðst of mikið.“

Hann ítrekaði hvatningar um vopnahlé, óhindraða flutninga mannúðarðastoðar og lausn allra gísla.

„Það er nauðsynlegt að dyrum sé haldið opnum fyrir einu leiðina til að tryggja frið í Mið-Austurlöndum, en það er að palestínskt ríki rísi við Ísraels-ríkis.“

António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er staddur í Brussel. Hann hitti í dag að máli Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins.
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna er staddur í Brussel. Hann hitti í dag að máli Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins. Mynd. UNRIC/Marian Blondeel

ESB og Sameinuðu þjóðirnar

Hann lauk lofsorði á starf ESB í loftslagsmálum. Hann sagðist sannfærður um að „Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar munu í sameiningu berjast fyrir betra alþjóðasamfélagi á öruggari plánetu.”

Auk þess að sitja vinnu-hádegisverð ESB leiðtoganna, átti Guterres í gær fund með Ursula von der Leyen forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, António Costa forseta ráðherraráðsins og Roberta Metsola forseta Evrópuþingsins. Á morgun, föstudag, tekur hann við sameiginlegri heiðursdoktorsnafnbót fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna hjá háskólunum KU Leuven og UC Louvain í Belgíu.

Fréttir