A-Ö Efnisyfirlit

Guterres segir tveggja ríkja lausn eina leið til friðar á milli Ísraels og Palestínu

Konur á Gasa bíða eftir matardreifingu.
Konur á Gasa bíða eftir matardreifingu. © UNICEF/Mohammed Nateel

Ísrael. Palestína. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur ítrekað að tveggja ríkja lausn sé eina sannfærandi leið til varanlegs friðar, ekki aðeins á milli Ísraels og Palestínu heldur um öll Mið-Austurlönd.

Hann lét þessi orð falla í opnunarræðu á tveggja daga ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um tveggja ríkja lausn á áratuga gamalli deilu Ísraela og Palestínumanna. Með tveggja ríkja lausn er átt við að hvor þjóð um sig fengi sitt sjálfstætt ríki, sem myndu lifa í friði hlið við hlið.

Ísrael og Bandaríkin sniðganga ráðstefnuna sem er fer fram undir forsæti Frakklands og Sádi Arabíu.

Nokkrir háttsettir þátttakendur í ráðstefnunni um tveggja ríkja lausnina.
Nokkrir háttsettir þátttakendur í ráðstefnunni um tveggja ríkja lausnina. Mynd: UN Photo/Mark Garten

Grafið undan friði

Guterres hvatti til endurnýjunar pólitísks vilja til að framfylgja tvegga ríkja lausn og fordæmdi aðgerðir sem grafa undan friði.

 „Ekkert getur réttlætt hinar hörmulegu árásir Hamas 7.október og gíslatökuna, sem ég hef ítekað fordæmt,“ sagði Guterres. „Og ekkert getur réttlætt tortímingu Gasasvæðisins sem veröldin hefur fylgst með. Íbúarnir eru sveltir og tugir þúsunda óbreyttra borgara drepnir. Herteknu svæðunum er sundrað enn meir, landtaka heldur áfram án afláts og ofbeldi landnema í garð Palestínumanna fer vaxandi.“

Aðalframkvæmdastjórinn fordæmdi einnig aðgerðir sem grafa undan friði, þar á meðal eyðilegging palestínskra heimila, þvingaðan brottflutning og nýlega stuðningsyfirlýsingu ísraelska þingsins við innlimun vesturbakka Jórdanar.

Hann ítrekaði að tveggja ríkja lausn væri enn sem fyrr eina lífvænlega og löglega leið til friðar. Ísrael og Palestína ættu að lifa hlið við hlið við frið og öryggi. Landamæri frá því fyrir 1967 ættu að gilda og Jerúsalem að vera höfuðborg beggja ríkja. Hann lagði áherslu á að bæði ríkin yrðu sjálfstæð, lýðræðisleg og nytu viðurkenningar alþjóða samfélagsins.

Aðstoðar er sárlega þörf

Um helgina tilkynnti Ísraelsher stefnubreytingu. Var lýst yfir vopnahléi í mannúðarskyni frá 10 að morgni til 8 að kvöldi þar sem herinn væri ekki virkur. Á sunnudag fluttu rúmlega 100 vöruflutningabílar hjálpargögn inn á Gasasvæðið um Kerem Shalom landamærastöðinn í suðri.

Samræmingarskrifstofa mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum, OCHA, lagði áherslu á hve mikill skortur ríkti á Gasa.

Þriðji hver maður „hefur ekki borðað dögum saman” sagði Tom Fletcher framkvæmdastjóri OCHA. „Skotið er á fólk sem reynir að ná í mat til að brauðfæða fjölskyldur sínar. Börn eru að deyja. Þetta er það sem við stöndum frammi fyrir á þessari stundu.”

Í yfirlýsingu sagði Fletcher að síðustu fréttir væru skref fram á við, en lagði áherslu á að „gríðarlega mikið af hjálpargögnum þarf til að koma í veg fyrir hungursneyð og hamfaraástand í heilbrigðismálum.”