Gasasvæðið. Hryðjuverkaárás á Ísrael. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hvatti í dag til þess í yfirlýsingu í tilefni af tveggja ára afmælis árásanna 7.október 2023 að allir ísraelskir gíslar í haldi á Gasasvæðinu yrðu látnir lausir tafarlaust.
Tvö ár eru liðin í dag frá því að Hamas og aðrar palestínskar vígasveitir gerðu hryðjuverkaárás á Ísrael og drápu rúmlega 1250 Ísraela og erlenda ríkisborgara. Rúmlega 250 aðrir voru numdir á brott og fluttir til Gasasvæðisins í gíslingu; þar á meðal konur, börn og eldra fólk.
„Við skulum minnast allra þeirra sem létust á þessum degi og máttu líða skelfilegt ofbeldi,“ sagði Guterres í ávarpi sínu. „Hryllingur þessa dimma dags verður að eilífu brenndur í minni okkar allra. Nú tveimur árum síðar eru gíslar enn í haldi á Gasa við hræðilegar aðstæður. Ég hef sagt margítrekað og endurtek enn á ný í dag: látið gíslana lausan, án tafar og skilyrðislaust.“
Tækifæri sem bera að nýta
Aðalframkvæmdastjórinn sagði að tækifæri fælist í nýlegum tillögum Donalds J. Trump Bandaríkjaforseta, sem bæri að nýta, til að binda enda á þessi sorglegu átök.
„Varanlegt vopnahlé og trúðverðugt pólítískt ferli eru þýðingarmikil til að koma í veg fyrir frekari blóðsúthellingar og greiða leiðina fyrir friði. Alþjóðalög ber að virða. Sameinuðu þjóðirnar eru staðfastar sem fyrr í stuðningi við frið.“
„Við skulum heiðra minningu allra fórnarlambanna með því að vinna að einu færu leiðinni: réttlátum og varanlegum friði. Ísraelar og Palestínumenn og allar þjóðir þessa heimshluta eiga að geta lifað hlið við hlið við öryggi, reisn og gagnkvæma virðingu,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.
Sjá einnig hér.
