A-Ö Efnisyfirlit

Guterres um Gaza: Ekki fleiri afsakanir, engar frekari hindranir, ekki meiri lygar

António Guterres hittir Sangjin Kim Chargé d'affaires Suður-Kóreu sem situr í forsæti Öryggisráðsins í september
António Guterres hittir Sangjin Kim Chargé d'affaires Suður-Kóreu sem situr í forsæti Öryggisráðsins í september. Mynd: UN Photo/Eskinder Debebe

Gasasvæðið. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir að manndrápin og eyðileggingin á Gasasvæðinu „eigi sér engin fordæmi á síðari tímum.”   

„Og þau eru afleiðing af vísvitandi ákvörðunum, sem brjóta í bága við hvers kyns mannúð,“ sagði Guterres áður en Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar um málefni Gasasvæðisins 28.ágúst.

Hann sagði að ekki lengur væri óttast að hungursneyð yrði „því hungurhamfarir herja nú þegar á íbúana.”

Amar Bendjama fastafulltrúi Alsírs á fundi Öryggisráðsins með mynd af fréttakonu sem lét lífið í árás Ísraels á sjúkrahús á Gasa fyrr í vikunni. Mynd: UN Photo/Evan Schneider
Amar Bendjama fastafulltrúi Alsírs á fundi Öryggisráðsins með mynd af fréttakonu sem lét lífið í árás Ísraels á sjúkrahús á Gasa fyrr í vikunni.

Gasasvæðið: opnið fyrir aðstoð

Hann sagði að Ísrael bæri skyldi til að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja óhindraða mannúðar- og læknisaðstoð við Palestínumenn á allri Gasaströndinni tafarlaust og í fullu samráði við Sameinuðu þjóðirnar.

„Þessu verður að hrinda í framkvæmd að fullu og umsvifalaust,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn. „Sameinuðu þjóðirnar og samstarfsaðilar þeirra gera allt sem í þeirra valdi stendur og taka mikla áhættu. Þannig hafa nú 366 starfsmenn Sameinuðu þjóðanna verið drepnir. Dag eftir dag er viðleitni okkar stöðvuð, aðgerðir tafðar eða bannaðar. Þetta er óásættanlegt.“

Börn snæða orkuríkt kex á heilsugæslustöð á Gasa.
Börn snæða orkuríkt kex á heilsugæslustöð á Gasa. Mynd: © UNICEF/Eyad El Baba

Hungurvopn ber ekki að nota í hernaði

Hann lýsti einnig áhyggjum af þróun mála á Vesturbakka Jórdanar og þá sérstaklega því að leyfi hefur verið gefið til bygginga þúsunda ísraelskra heimila á hernámssvæði Ísraels. Þá sagði hann að Ísrael bæri að gjalda reikningsskil vegna mannskæðrar árásar á sjúkrahús, þar sem blaðamenn voru á meðal hinna drepnu.

Hann lagði áherslu á að það væri engin hernaðarleg lausn möguleg. Hann hvatti til tafarlauss og varanlegs vopnahlés, óhindraðs aðgangs fyrir mannúðaraðstoð á öllu Gasasvæðinu og tafarlausrar og skilyrðislausrar lausnar gísla.

„Það má aldrei svelta óbreytta borgara í hernaðarskyni. Vernda ber almenning. Mannúðaraðstoð ber ekki að hindra. Ekki fleiri afsakanir. Engar frekari hindrandir. Ekki meiri lygar,“ sagði Guterres.

Sjá einnig hér.