Gervigreind er nú þegar farin að umbreyta heiminum, en vald hennar er í höndum „hinna fáu,” að sögn António Guterres aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Í ávarpi á alþjóðlegu gervigreindarþingi í París hvatti Guterres þjóðir heims til að nota þessa byltingarkenndu tækni í sameiningu til þess að „brúa bil á milli þróaðra ríkja og þróunarríkja -ekki til að breikka bilið.“
Yfirmaður Sameinuðu þjóðanna var á meðal ræðumanna á aðgerðaþingi um gervigreind (AI Action Summit), sem Frakkar og Indverjar veittu forystu í Grand Palais í París. Hann sagði þýðingarmikið að samþjöppun gervigreindar á fáum stöðum gæti alið á sundrungu á alþjóðlegum vettvangi. Samþykkja bæri alþjóðlegt regluverk og deila reynslu.
Christopher Bowns-
Creative Commons Attribution-Share Alike 2.0
Ósjálfbær blettur
Þá hvatti Guterres til þess að hrein orka yrði notuð til að knýja gervigreind. Hann benti á að tæknin byggi á notkun orkufrekra tölvuvera, sem væru nú þegar „ósjálfbær blettur“ á plánetu okkar.
„Það skiptir miklu máli að algóriþþmar gervigreindar og uppbygging noti minni orku og tengist snjall-orkunetum til þess að nýta orkuna á sem skilvirkastan hátt,“ sagði hann. Gervigreind ætti að nota til að hraða innleiðingu Heimsmarkmiðanna um sjálbæra þróun í stað þess að festa í sessi ójöfnuð.
Ástæðulaus ótti
Á meðal fjölmargra þátttakenda í þinginu var poppstjarnan Pharel Williams. Hann sagðist ekki trúaður á að gervigreind ætti eftir að gera manneskjuna óþarfa og tortíma störfum. „Það er of mikill ótti,” sagði hann. Við munum ekki nota gervigreind til að semja lög. Hún mun ekki koma í stað sköpunar,” sagði hann og minnti á óttann sem greip um sig í tengslum við árið 2000. „Við lifðum það nú af.”
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna sagði að til stæði að fjárfesta 450 milljarða Bandaríkjadala í þessum geira. Hann varaði við of miklu relguverki. „Slíkt gæti kæft nýja iðngrein í fæðingu,” sagði hann.
Hlutverk Sameinuðu þjóðanna
Guterres minnti á að aðildarríki hefðu samþykkt stafrænan samning um stýringu gervigreindar í september síðastliðnum. Samingurinn fæli í sér þá hugsjón að „tæknin væri í þjónustu mannkynsins en ekki öfugt.” Þá hvatti hann öll ríki til að fylkja sér um og styðja stofnun Óháðrar alþjóðlegrar nefndar um gervigreind. „Okkur ber að koma í veg fyrir skiptingu í heimsins í þá sem búa yfir gervigreind og þá sem gera það ekki.”
