Gervigreind
António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna tekur þátt í leiðtogafundi um aðgerðir á sviði gervigreindar í París 10-11 febrúar.
Fundarboðendur eru Emmanuel Macron forseti Frakklands og Narendra Modi forsætisráðherra Indlands. Fulltrúar 100 ríkja taka þátt í fundinum, forsvarsmenn alþjóðlegra stofnana, fræðimenn og fulltrúar borgaralegs samfélags. Markmiðið er að skilgreina með hvaða hætti sé hægt sé að koma við alþjóðlegri stjórnun og eftirliti með gervigreind.
Melissa Fleming framkvæmdastjóri samskiptasviðs Sameinuðu þjóðanna tekur þátt í umræðum með sérfræðingum og öðrum háttsettum embættismönnum samtakanna.
Forgangsmál Sameinuðu þjóðanna
António Guterres hefur sett alþjóðlega stjórnun gervigreindar í forgang hjá Sameinuðu þjóðunum með það í huga að settar verði reglur um hönnun, hlutverk og notkun þessa nýja tækis. Hann telur að nýting grervigreindar feli í sér „tilvistarlegt úrlausnarefni“ fyrir mannkynið. Að hans mati ber að tryggja að gervigreind verið í þjónustu mannkynsins, en magni ekki upp ójafnvægi og stjórnlausa áhættu.
Leiðtogafundurinn mun einbeita sér að fimm þemum; gervigreind í almannaþágu, áhrif hennar á atvinnu, eflingu nýsköpunar með virðingu fyrir menningarlegri fjölbreytni, siðferði og áreiðanleika tækninnar, og loks alþjóðlegum stöðlum fyrir skilvirkt regluverk.
Ábyrg gervigreind í allra þágu
Leiðtogafundurinn þjónar sem vettvangur til að ræða áskoranir og tækifæri sem felast í gervigreind. Búist er við að gefin verði út óbindandi yfirlýsing, sem kann að leggja grunn að ábyrgri gervigreind í takt við Heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun.
Þá er leiðtogafundurinn hluti af víðtækari nálgun til að efla fullveldi þjóða á tæknisviðinu, en tryggja á sama tíma aðgang þróunarríkja að afrakstri þessarar stafrænu byltingar.
Umræðunni ber þannig að móta sjálfbæra, heillavænlegrar gervigreind í allra þágu. Sérstaklega verður hugað að hættu á misnotkun og verndun réttinda einstaklinga.
Fundurinn mun marka tímamót í alþjóða samvinnu um gervigreind og setja siðferði og samstöðu í greininni í brennidepil alþjóðlegra forgangsatriða.
