Ebóla. António Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir að ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó verðskuldi mun meiri athygli en hann fær í dag.
Í samtali við fréttamenn við Öryggisráðið varaði Guterres við því að ebólufaraldurinn í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó (DRC) breiddist út hraðar og víðar en viðbrögðin við honum og verðskuldaði mun meiri athygli en hann fær í dag.
„Faraldurinn er sá ebólufaraldur sem hefur vaxið hraðast frá upphafi. Hann vex hraðar og breiðist út víðar en viðbrögðin við honum,“ sagði Guterres. „Við vitum hvernig á að halda ebólu í skefjum – hvernig á að stöðva smit – og hvernig á að „bjarga mannslífum. En við verðum líka að sigrast á annarri veiru – veiru afskiptaleysisins.
António Guterres ræðir við blaðamenn um ebólafaraldurinn í Kongó. Mynd:
UN Photo/Mark Garten
Stærsti ebólafaraldur í Kongó
Þetta er nú stærsti ebólufaraldur í sögu Austur-Kongó. Þann 25. ágúst höfðu 5.713 tilfelli verið staðfest og 2.744 látist.
Og þar sem um 500 ný tilfelli eru tilkynnt í hverri viku heldur faraldurinn áfram að breiðast út yfir stórt svæði – og konur og börn verða sérstaklega illa úti.
Barátta við ebólu. © MONUSCO
Sameinuðu þjóðirnar hafa þegar lagt fram 80 milljónir dala úr sameiginlegum sjóðum SÞ og með stuðningi samstarfsaðila. Þær hafa lagt fram ítarlega 2,13 milljarða dala áætlun um mannúðarþarfir og viðbrögð.
„Þetta er 48% fjármagnað – að stórum hluta þökk sé stóru framlagi frá Bandaríkjunum.
Endist í vikur
En núverandi fjármagn mun endast í vikur – ekki mánuði,“ varaði Guterres við.
„Án viðbótarfjármögnunar verða mikilvægar aðgerðir uppiskroppa með fé einmitt þegar þær þurfa að stækka. Þess vegna biðla ég um þá 1,1 milljarð dala sem eftir eru til að fjármagna mannúðaráætlunina að fullu, með viðurkenningu á því að enn meira muni þurfa í framtíðinni. Heimurinn hefur enn tækifæri til að ná tökum á þessari kreppu. En tíminn er ekki okkar megin,“ sagði aðalframkvæmdastjórinn.
