A-Ö Efnisyfirlit

Hægt að fyrirbyggja 40% krabbameinstilfella

Ung stúlka undirgengst geislameðferð.
Ung stúlka undirgengst geislameðferð. Mynd: National Cancer Institute/Unsplash

Krabbamein. Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn. Hægt er að koma í veg fyrir allt að fjórum af hverjum tíu krabbameinstilfellum í heiminum, að því er fram kemur í nýrri rannsókn. Í henni er brugðið ljósi á nauðsyn öflugri tóbaksvarna og annarra aðgerða til að draga úr áhættu og bjarga mannslífum.

Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn 4.febrúar er tilefni útgáfu skýrslunnar á vegum Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO). Alþjóðlega krabbameinsrannsóknarstofnunin (IARC) sem starfar innan vébanda (WHO) brýtur til mergjar þrjátíu fyrirbyggjanlega þætti. Þar á meðal eru tóbaks- og áfengisneysla, hátt fituhlutfall í líkama, hreyfingarleysi, loftmengun og útfjólubláir geislar.

Konur eru hvattar til að þukla brjóst sín til að fylgjast með hugsanlegum brjóstakrabba.
Konur eru hvattar til að þukla brjóst sín til að fylgjast með hugsanlegum brjóstakrabba. Mynd:
National Cancer Institute/Bill Branson

Í fyrsta skipti er einnig fjallað um níu smitleiðir sem valda krabbameini, svo sem vörtusýkingu (HPV), sem er helsta ástæða leghálskrabbameins.

Úttekt á forvarnaaðferðum

Krabbamein er enn sem fyrr helsta dánarorsök heims. 10 milljónir létust af völdum krabbameins árið 2022. Sjötta hvert dauðsfall mátti rekja til krabbameins.

Búist er við að ef núverandi þróun heldur áfram muni nýjum krabbameinstilfellum fjölga um 50% fyrir 2040.

Ung kona í Bamako í Malí fær bólusetningu gegn HPV.
Ung kona í Bamako í Malí fær bólusetningu gegn HPV. © UNICEF/Adriana Borra

Rannsóknin tekur til athugunar talnaefni frá 185 ríkjum og nær til 36 tegunda krabbameins. Talið er að 37% nýrra krabbameinstilfella árið 2022 hafii mátt rekja til fyrirbyggjanlegra orsaka eða 7.1 milljón.

„Með því að kanna mynstur þvert á landamæri og hópa, getum við séð ríkisstjórnum og einstaklingum fyrir nákvæmari upplýsingum til að koma í veg fyrir margs konar krabbamein áður en það byrjar,“  segir Dr. André Ilbawi teymisstjóri hjá WHO og höfundur skýrslunar.

Tóbaksneysla helsta orsökin  

Tóbaksneysla er helsta orsök nýrra krabbameinstilfella eða 15% nýrra. Þar á eftir koma sýkingar (10%) og áfengisneysla (3%).

Lungna-, maga,og leghálskrabbamein eru næstum helmingur fyrirbyggjanlegra krabbameina.

Lungnakrabbamein tengist aðallega reykingum og loftmengun.  Magakrabbi orsakast að verulegu leyti af Helicobacter pylori sýkingu. HPV-veiran er langstærsta orsök leghálskrabbameins.

Rannsóknin tekur til athugunar talnaefni frá 185 ríkjum og nær til 36 tegunda krabbameins.
Rannsóknin tekur til athugunar talnaefni frá 185 ríkjum og nær til 36 tegunda krabbameins. Mynd: National Cancer Institue/Unsplash

Munur á körlum og konum   

Reykingar orsaka 23% nýrra krabbameinstilfella hjá körlum, en þar á eftir koma sýkingar (9% ) og áfengisneysla (4%).

Sýkingar voru helsta orsökin hjá konum eða 11%. Þar á eftir voru reykingar (6%) og hátt fituhlutfall í líkamanum (3%).

Alþjóðlegi krabbameinsdagurinn: Forvarnaáætlanir  

Í skýrslunni er lögð áhersla á þörf á áætlunum sem taki tillit til samhengis. Sem dæmi um það eru varnir gegn tóbaks- og áfengisneyslu, bólusetningar gegn HPV-veiru og öðrum krabbameinsvaldandi sýkingum á borð við lifrarbólgu B.

Bætt loftgæði, öruggari vinnustaðir, heilnæmari fæði og líkamshreyfing skipta einnig máli.

Þá minnir Sameinuðu þjóða-stofnunin á að hér hangir ekki aðeins á spýtunni að fækka krabbameinstilfellum heldur einnig að draga úr kostnaði við heilbrigðiskerfi og bæta heilsu og lífsgæði fólks.