A-Ö Efnisyfirlit

Kona deyr úr leghálskrabbameini á tveggja mínútna fresti

Alþjóððlegur mánuður vitundarvakningar um leghálskrabbamein. Mynd:Angiola Harry -Unsplash
Alþjóððlegur mánuður vitundarvakningar um leghálskrabbamein. Mynd:Angiola Harry -Unsplash

 Janúar er alþjóðlegur vitundarmánuður um leghálskrabbamein. Markmiðið er að auka þekkingu, snemmbæra greiningu og forvarnir.  

Árið 2022 greindust rúmlega 660 þúsund konur í heiminum með leghálskrabbamein. Talið er að það hafi dregið 350 þúsund konur til dauða. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu, varar við því að kona látist af völdu leghálskrabba á tveggja mínútna fresti.

Flest dauðsföllin eru í lág- og meðaltekjuríkjum heimsins. Konur í meðaltekjuríkjum voru tvisvar sinnum líklegri til að fá leghálskrabbamein og 2-4 sinnum líklegri til að deyja af völdum þess, en kynsystur þeirra í auðugum ríkjum. Konur í lágtekjuríkjum eru þrisvar sinnum líklegri til að fá leghálskrabbamein og níu sinnum líklegra til að það dragi þær til dauða, en í hátekjuríkjum.

Alþjóðlegur vitundarmánuður um leghálskrabbamein Mynd:Angiola Harry -Unsplash
Alþjóðlegur vitundarmánuður um leghálskrabbamein. Mynd:Angiola Harry -Unsplash

Bólusetning, skimun og meðferð

Leghálskrabbamein er fjórða algengasta krabbamein hjá konum. Vörtuveira (HPV) er langalgengasta orsök þess eða í 95% tilfella.

HPV er algeng veira og smitast við kynmök.  Oftast losar líkaminn sig við HPV, en ef það gerist ekki getur veiran valdið krabbameini.

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hleypti vitundarmánuði leghálskrabbameins af stokkunum í nóvember 2020. Langtímamarkmiðið er að leghálskrabbameini verði útrýmt sem lýðheilsuvá fyrir 2100. Til þess að svo megi verða þarf að minnka tíðni í fjögur tilfelli af hverjum 100 þúsund konum. Þrennt þarf til að þetta náist:

Alþjóððlegur mánuður vitundarvakningar um leghálskrabbamein. Mynd:Angiola Harry -Unsplash
Alþjóðlegur vitundarmánuður um leghálskrabbamein.
  • Bólusetning: 90% 15 ára stúlkna séu að fullu bólusettar við HVP.
  • Skimun: 70% kvenna verði skimaðar með þróuðum búnaði fyrir 35 ára aldur og aftur fyrir 45 ára.
  • Meðferð: 90% kvenna á forskrabbameinsstigi njóti meðferðar og  90% með ífarandi krabbmein ummönnunar.

Tíðni leghálskrabbameins hefur minnkað á öllum Norðurlöndum á undanförnum áratugum.  Bóluefni gegn HPV beindust fyrst og fremst gegn leghálskrabbameini til að byrja með, enda er það langalgengast krabbameina sem tengjast HPV, en bóluefnin hafa sannað gildi sitt gegn HPV sýkingum óháð kyni.

Bólusetningarherferð á Íslandi

Bólusetning gegn HPV veirunni hófst hér á landi árið 2011, fyrst eingöngu hjá stúlkum en hefur síðan verið útvíkkuð og fyrir tveimur árum var farið að bjóða slíka bólusetningu óháð kyni fyrir tiltekna aldurshópa. Síðastliðið sumar ákvað Alma D. Möller heilbrigðisráðherra að veita fjármagni til HPV bólusetningar fyrir óbólusetta drengi upp í 18 ára aldur. Átak fyrir árgang 2010 fór af stað hjá heilsugæslu síðastliðið haust og nú fer að koma að árgöngum sem komnir eru á næsta skólastig. Sóttvarnalæknir er nú að hefja átak um bólusetningu drengja sem fæddir eru árin 2008-2010 og verður bólusetning þessara árganga gjaldfrjáls í vetur. Sýnt hefur verið fram á að HPV bólusetning er mikilvæg leið til að fækka krabbameinstilfellum, segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.

Sjá einnig hér