Hælisleitendur ekki fleiri í 22 ár

0
490
unhcrflyktninger

unhcrflyktninger

26.mars 2015. Fjöldi hælisleitenda hefur ekki verið meiri í heiminum frá því Balkanstríðin stóðu sem hæst eða í  22 ár.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Ástæðurnar eru aukning styrjaldarátaka og minnkandi öryggi.

„Af þessum sökum, ekki síst vegna ástandsins í Sýrlandi stöndum við í sömu sporum og á tíunda áratug síðustu aldar þegar stríð geisaði á Balkanskaga,” segir António Guterres, Flóttamannastjóri Sameinuðu þjóðanna.

„Okkur ber að sýna sömu rausn og þá og veita flóttamönnum sem flýja þessi hræðilegu átök hæli og tækifæri til að setjast .”

866 þúsund manns sóttu um hæli í iðnríkjum árið 2014 og var það 45% aukning frá fyrra ári, 2013. Þetta er mesti fjöldi hælistleitenda frá því stríð braust út í Bosníu og Hersgóvínu 1992.

150 þúsund hælistleitenda voru Sýrlendingar og næst fjölmennasdtir voru Írakar eða 70 þúsund.

Svíar taka á móti hlutfallslega flestum hælisleitendum eða 24.4 á hverja þúsund Svía. Á sama tíma og flest ríki hafa tekið á móti fleiri hælisleitendum 2014 en áður, gildir hið gagnstæða um Ástralíu en þar fækkaði þeim um 24%. 1.5 milljón sýrlenskra flóttamanna er í Tyrklandi og 1.1 milljón í Líbanon.