Ríkisvaldið hefur litla stjórn á Haítí en glæpagengi vaða að sama skapi uppi í höfuðborginni Port-au-Prince og víðar í landinu. Börn eru nú helmingur félaga í glæpagengjum.
„Daglegt líf er nærri lamað og fjölskyldur hafa neyðst til að leggja á flótta,“ sagði António Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna á fundi Öryggisráðs samtakanna í gær 29.ágúst.
Sex milljónir manna þurfa á mannúðaraðstoð að halda á Haítí. 1.3 milljónir, helmingurinn börn, hafa flúið heimili sín.
© PAHO/WHO/David Lorens Mentor
Eitt af fimm vandamestu svæðunum
Haítí er nú í hópi þeirra fimm svæða í heiminum þar sem mestar áhyggjur þarf að hafa af hungri að sögn aðalframkvæmdastjórans. Á sama tíma hefur ákall um mannúðaraðstoð skilað minnstum árangri af öllum slíkum fjárbeiðnum. Aðeins hefur tekist að tryggja innan við 10% þeirra 908 milljóna Bandaríkjadala, sem talið er þurfa til að mæta brýnustu þörfum bágstaddra.
Guterres tjáði Öryggisráðinu að alþjóðasamfélagið léti sig vanda Haítí „skammarlega litlu varða.”
Vígasveitir halda áfram að koma í veg fyrir flutning mannúðaraðstoðr og hafa ráðist á hjálparstarfsmenn.
1.7 milljón manna fær enga aðstoð vegna fjárskorts og úrræðaleysis. „Hér er ekki aðeins um að ræða fjárskort heldur spurningu um líf eða dauða.“
Hann skoraði á fjárveitendur að taka við sér áður en lífsbjargandi hjálparstarf myndi stöðvast.
Um allt landið hefur grundvallarþjónusta við íbúa hrunið. Vegna fjöldaflótta fólks njóta börn hvorki menntunar, heilsugæslu né öryggis. Síðastliðið vor var svo komið að 243 þúsund barn fengu enga kennslu vegna árása glæpagengja á skóla.
Ólýsanlegar þjáningar
Catherine Russell forstjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) ávarpaði Öryggisráðið. Hún tjáði fastafulltrúum ríkjanna í Öryggisráðinu að æska Haítí mætti þola „ólýsanlegar þjáningar vegna grimmilegs ofbeldis.”
Hún benti á að Sameinuðu þjóðirnar á Haítí hefðu skráð rúmlega tvö þúsund brot gegn börnum. Þetta er nærri 500% aukning frá fyrra ári.
Enn væri ástæða til að hafa áhyggjur af því að börn væru þvinguð til liðs við vígasveitir. 700% aukning hefur verið á milli ára. Drápum og limlestingum hefði fjölgað um 54% sagði Russell.
Börn eru nú hvorki meira né minna en helmingur félaga glæpagengja á Haítí.
