A-Ö Efnisyfirlit

Hantaveirufaraldur í skemmtiferðaskipi: Engin þörf á að örvænta

Hantaveira berst með nagdýrum
Hantaveira berst með nagdýrum. Mynd: Creative Commons Attribution-Share Alike 4.0 International

Hantaveira. Þrír hafa látist og þrír aðrir eru veikir eftir grun um hantaveirusmit í skemmtiferðaskipi á Atlantshafi, að því er Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) greindi frá á sunnudag.

„Hættan fyrir almenning er enn lítil. Engin þörf er á að örvænta eða setja á ferðatakmarkanir, sagði Dr. Hans Henri P. Kluge, svæðisstjóri WHO fyrir Evrópu, í yfirlýsingu í dag. Ég er nýkominn frá Afríku þar sem ég ræddi nánara samstarf um neyðartilvik í heilbrigðismálum og þetta er tímabær áminning: heilbrigðisógnir virða ekki landamæri. Samvinna er leiðin til að vernda fólk, hélt hann áfram.

WHO styður viðbrögðin og bendir á að eitt tilfelli af sjúkdómnum, sem berst með nagdýrum, hafi verið staðfest hingað til og fimm önnur tilfelli séu til rannsóknar. Ítarlegar rannsóknir standa yfir, þar á meðal frekari rannsóknarstofupróf. Af þeim sex sem veiktust hafa þrír látist og einn er nú á gjörgæslu í Suður-Afríku.

Höfuðstöðvar WHO í Genf
Höfuðstöðvar WHO í Genf. Mynd: WHO/P. Virot

Skjót viðbrögð skipta sköpum

„Læknishjálp og stuðningur er veittur farþegum og áhöfn. Raðgreining veirunnar er einnig í gangi,“ sagði WHO í yfirlýsingu sem birt var á X.

Í sérstakri færslu á X sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, forstjóri WHO, að stofnunin „auðveldi flutning tveggja farþega með einkenni á sjúkrahús, framkvæmi fullt áhættumat og styðji við þá sem eru um borð.“ Hann lagði áherslu á að „skjót og samræmd viðbrögð skipti sköpum til að hefta áhættu og vernda lýðheilsu.“

Hantaveirusýking er sjaldgæfur sjúkdómur sem tengist saur eða þvagi sýktra nagdýra og getur valdið lífshættulegum öndunarfæravandamálum. Skemmtiferðaskipið, sem er rekið af hollensku fyrirtæki, lagði af stað frá Argentínu fyrir þremur vikum og stefndi á Kanaríeyjar en er nú statt undan ströndum Grænhöfðaeyja í Vestur-Afríku, samkvæmt fréttum.

WHO hefur einnig upplýst tengiliði sína í aðildarríkjum í samræmi við alþjóðaheilbrigðisreglugerðina, samninginn frá 2005 sem lýsir réttindum og skyldum landa við stjórnun lýðheilsuáhættu, atburða og neyðartilvika sem gætu borist yfir landamæri.

Sjá nánar hér.